mánudagur, apríl 16, 2007

Auschwitz

Viðar Guðjohnsen, vonarstjarna Frjálslynda flokksins, heldur úti moggabloggsíðu eins og þorri þjóðar þar sem hann tjáir sig um ógeðslega útlenska berklasmitbera sem flæða stjórnlaust heimshorna á milli og gera fátt annað en að vekja ótta í brjóstum samviskusamra og heiðarlegra (og kákasískra) Vesturlandabúa.

Á náttborði hans, að eigin sögn, er bók um Auschwitz. Obbossí. Hvað skyldi Viðar litli hafa á prjónunum?

Nei ókei. Þetta var ómálefnalegt. Sorrí.

mánudagur, apríl 02, 2007

Spennufall

Sá grunur læðist að mér að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar í Hafnarfirði um helgina muni minnka vægi umhverfismála í komandi þingkosningum til allra muna, gefið að vægi þeirra hefði nokkurn tíma orðið eitthvað yfir höfuð.

Miðað við það sem ég hef lesið, séð og heyrt virðast flestir stjórnmálamenn og -skýrendur sammála um það að þessi niðurstaða sé "sigur fyrir umhverfisverndarsinna", sem má vel vera, og muni "gefa VG og Íslandshreyfingunni byr undir báða vængi".

Sem er kjaftæði.

Þeir einu sem kjósa til Alþingis eftir umhverfismálum eru umhverfisverndarsinnar. "Umhverfiseyðileggingarsinnar" eru ekki til. Þeim sem mögulega væri hægt að lýsa þannig er einfaldlega ekkert mjög umhugað um umhverfið, og láta því aðra málaflokka stjórna því hvar atkvæði þeirra lendir. Eðlilega.

Nú held ég hins vegar að umhverfisverndarsinnum finnist mörgum hverjum hálfur björninn unninn - hann liggi í það minnsta svo gott sem óvígur eftir. Ég held að þetta þyki í hugum margra slíkur áfangasigur að í raun sé nóg komið af slagsmálunum í bili. Nú sé hægt að snúa sér að öðrum málaflokkum. Enda er ýmislegt annað sem brennur á flestum, líklega mun heitar en náttúran ef lagst yrði í almennilega sálskoðun.

Og svo eru hinir, sem eru bara löngu komnir með upp í kok. Jafnvel hættir að finna til náttúru sinnar af allri vitleysunni, ef svo má að orði komast. Og þeir eru varla mikið færri.