fimmtudagur, ágúst 03, 2006

Sjokk ársins

Kafloðinn Logi Bergmann. Hvernig er hægt að ætlast til þess að einhver geti einbeitt sér að fréttaflutningi manns þegar hann er nýbúinn að gjörbylta ímynd sinni svona? Svo er skipt yfir á viðtal við fúlskeggjaðan iðnaðarráðherrann og maður furðar sig á því að þar fari sami maður og sá um kynningu fréttarinnar. Ég held að þetta sé jafnvel drastískari útlitsmódifíkasjón en þegar Bogi Ágústsson klippti sig eins og smástrákur.