PróflesturKastljósið í kvöld var miklu skemmtilegra. Ég elska sjálfbæra fjölmiðlun. Svo var formið á þessu viðtali svo merkilegt. Kristján var einhvern veginn sinn eigin viðmælandi. Maður getur velt því fyrir sér hversu mikinn séns einhver á í rökræður ef mótherjinn stjórnar því í einu og öllu hvernig rökræðurnar fara fram. Annars hef ég gaman af aðgangshörku Kristjáns.
Ég er með heimspeki-, eðlis-/efna-/stærð- eða rökfræðilega spurningu. Ímyndum okkur ílát barmafullt af vökva, segjum bara kaffi. Nú látum við vatn vætla rólega í ílátið, án þess að dropar skvettist um allar jarðir, en þó þannig að það flæði yfir barmana. Getur einhver mér fróðari um eðli alheimsins sagt mér hvort það komi nokkurn tíma að því að allt kaffið verði horfið úr ílátinu og eftir sitji ekkert nema hreint vatn?