RíspektHér er fyndin bloggfærsla um nafngiftir banka.
Hér er önnur.
Sjálfum finnst mér þetta nýja nafn heldur ómerkilegt og ekki eiga skilið neina athygli af viti eða fjölmiðlaumfjöllun nema ef vera skyldi í einhverjum tilkynningadálkum. Svo finnst mér ekki eðlilegt að fyrirtækjum séu seldar auglýsingar á fyrstu opnu dagblaða ef miðlarnir vilja halda virðingu. Það er þó reyndar skömminni skárra en
Blaðið sem annan hvern dag er bókstaflega vöðlað inn í auglýsingar frá hinum og þessum misskítugum matvöruverslunum. Þeim finnst kannski líklegra að einverjir setjist niður með þrjátíu síðna auglýsingabækling frá Nóatúni en þennan auma snepil þeirra og kjósa þess vegna að dulbúa hann. Ég skal ekki segja.
Það er orðið dáldið síðan ég leyfði ykkur að heyra músík. Hér fáiði heljarinnar skammt:
Dirty Whirlwind með Tv on the Radio af
Return to Cookie Mountain, frábærri plötu sem er væntanleg seint í apríl.
Um daginn lét ég ykkur hafa lagið
Kolly Kibber's Birthday af plötunni
World Shut Your Mouth með Julian Cope frá 1984. Hér er annað sem heitir
Quizmaster og er ógó gott eins og platan öll.
Gnarls Barkley kóver af gamla Violent Femmes laginu
Gone Daddy Gone. Verður á plötunni sem kemur bráðlega út.
Ég setti plötuna
More Deep Cuts með hljómsveitinni Thee More Shallows í tíunda sæti á árslistanum mínum í fyrra. Lagið
2 AM er frekar rólegt og gott, en samt fáránlega intens.
Lagið
Police Sweater Blood Vow af væntanlegri plötu Fiery Furnaces,
Bitter Tea. Ótrúlega flott lag.
Ég þreytist víst seint á Tim Buckley og ætla að reyna halda trúboði mínu ótrauður áfram hérna. Eins og ég hef áður sagt þá er Buckley eldri besti söngvari allra tíma og var líka magnaður lagasmiður. Á plötunni
Sefronia, hans næstsíðustu plötu áður en hann dó úr heróínneyslu, má finna kóver af laginu
Martha eftir Tom Waits sem kom út sama ár á fyrstu plötu Waits,
Closing Time. Njótið líka lagsins
Strange Feelin' af plötunni
Happy/Sad frá árinu 1968.
Wu-Tang kombakkið
9 Milli Bros af
Fishscale, væntanlegri plötu Ghostface Killah. Þeir hafa meira að segja séð okkur fyrir gömlu Ol' Dirty versi. Frekar mikil fita. Fær mig reyndar til að leiða hugann að þeirri nístandi sorg sem fylgdi því þegar Wu-Tang skrópuðu á tónleikunum sínum í höllinni og marði varanlega hjartað í stærstum hluta unglinga landsins. Það var ljótur leikur.
Í fjórða sæti á árslistanum mínum setti ég þá frábæru plötu,
The Mysterious Production of Eggs með Andrew Bird nokkrum. Lagið
Opposite Day er bara eitt dæmi um snilldina á þessari plötu. Textarnir eru ekkert slor heldur: "Today was supposed to be the day molecules decided changing form/ laws of physics lose their sway/ youthful indescretion now is suddenly the norm/ with the good kids sprouting horns." Ekki hægt að mæla nóg með þessu.
Yeah Yeah Yeah Song, fyrsta lagið af væntanlegri plötu Flaming Lips,
At War With the Mystics. Platan veldur nokkrum vonbrigðum en þetta lag er of gott.
Hljómsveitin Akron/Family vermdi sjöunda sætið á árslistanum með samnefnda plötu. Ég ætla hins vegar ekki að leyfa ykkur að heyra lag af henni, heldur af plötu sem þeir skiptu í helming til móts við tónlistarmanninn Mike Gira, sem þar kallaði sig Angels of Light. Helmingur Akron/Family á þeirri plötu var nefnilega algjört gull - hinn helmingurinn ekki. Hér er lagið
Moment, frekar erfitt lag svona til að byrja með en gefið því endilega séns.
Lagið
Products af
This Is My Demo, nýrri og ofhæpaðri plötu breska rapparans Sway. Þetta er sennilega flottasta lag plötunnar.
Svo langar mig endilega að henda í ykkur flottu lagi með hljómsveit sem heitir Gun Club. Lagið heitir
Sex Beat og kom út á plötunni
Fire of Love árið 1981. Töff.
Reynið svo að hafa það dáldið gott.