miðvikudagur, febrúar 22, 2006

Gleði gleði

Um jólin gerði ég lista yfir plötur ársins og hengdi við hann kategoríuna vonbrigði ársins, þar sem ég úthúðaði Friedbergersystkinunum Eleanor og Matt fyrir analslaka og misheppnaða plötu. Ég sagði að fallið væri hátt þegar metnaðurinn væri augljóslega svona mikill og klykkti út með því að segjast vona að þau lifðu þetta fall af.

Mér er mikil ánægja að upplýsa ykkur um það að þau eru enn sprelllífs og að væntanleg plata þeirra, Bitter Tea, er massatöff.

Fyrir skemmstu ætlaði ég að skrifa smá pistil um týnd seleb, hvað hefði orðið um þau og hvernig væri hægt að endurheimta þau. Þeir sem kveiktu hjá mér hugmyndina, svona aðallega, voru Dennis Rodman og Bessi Bjarnason. Stuttu eftir að ég fór að hugleiða þetta þá dó Bessi og nú er Rodman í öllum fjölmiðlum að heimta sæti í NBA-liði og vera almennt fleppaður. Á ég að þora að velta þessu frekar fyrir mér?

mánudagur, febrúar 20, 2006

Hópþrýstingur

Hingað til hef ég ekki lagt það í vana minn að taka þátt í hinum og þessum leikjum sem hafa riðið yfir bloggheima eins og flóðbylgja yfir lítil börn. Ég hef þvert á móti reynt að forðast það - jah - á svipaðan hátt og ég gæti ímyndað mér að barn mundi forðast flóðbylgju. Eða flóðbylgja barn. En nú bregður svo við að mér hefur verið hótað limlestingum og dauða af ekki ómerkari manneskju en Dagbjörtu Hákonardóttur svari ég ekki kalli og þvaðri eitthvað út í tómið um mín innstu hugðarefni. Andskotans hnýsni. Aldrei mundi ég hóta neinum líkamsmeiðingum nema sá hinn sami væri lítilmagni sem gæti enga björg sér veitt, eins og til dæmis börn á flótta undan flóðbylgju - svona svo tekið sé lítið dæmi. En já, Garðar kuklaði mig víst líka (hvað er með þetta nafn? Ekki Garðar, heldur kukl. Garðar er fínt nafn), auk Döggu, svo ég þarf kannski að drífa í þessu - áður en Dagga sigar á mig einhverjum jökum (mér skilst að hún þekki Ívar Hauksson, sem reyndar er orðinn svona 94 ára gamall og krumpaður ef mér reiknast rétt til). Verði ykkur að því:

Fjögur störf sem ég hef unnið:
-Blaðburðardrengur hjá DV (á friðartímum)
-Unglingavinnustarfsmaður víðsvegar um Reykjavík og fjærsta nágrenni
-Garðyrkjumaður hjá Garðaprýði/Eylandi
-Blaðamaður á Fréttablaðinu

Fjórir staðir sem ég hef búið á:
-Fritz-Reuterstrasse eitthvað í Berlín
-Þingholtsstræti 8
-Skaftahlíð 7/9/15
-Skipholt 36

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líka:
-Arrested Development
-Lost
-The O.C.
-American Idol

Fjórar myndir sem ég get horft á voða oft:
-Pulp Fiction
-Groundhog Day
-The Nightmare Before Christmas
-Chinatown

Fjórir staðir sem ég hef þvælst til í frístundum:
-Prag
-London
-Albufeira
-Ásbyrgi

Fjórar vefsíður sem ég skoða daglega:
-aintitcool.com
-pitchforkmedia.com
-mbl.is
-imdb.com

Fjórar góðar máltíðir:
-Kjúklingabringur í indversku karríi
-Pítsa á portúgölskum veitingastað sem ég man ekki hvað heitir
-Quiznos
-Innbakaður hamborgarahryggur

Fjórar bækur sem ég hef lesið
-Good Omens eftir Gaiman og Pratchett
-Allt á iði í Erilborg
-Safnarinn eftir Fowles
-Albin og furðuhjólið

Fjórar hljómplötur sem ég gæti erfiðlega verið án:
-The Velvet Underground & Nico
-Nas - Illmatic
-Tortoise - TNT
-Robert Wyatt - Rock Bottom

Fjórir staðir sem ég vildi heldur vera á núna:
-Undir sæng
-Dubai
-Nýja-Sjáland
-Barcelona

Mér dettur ekki í hug að fleyta þessum leik lengra með einhverju áframhaldandi kukli. Það væri bara ómennska. Ég vona að þetta nýtist sem skyldi í ykkar einkar vafasömu rannsóknir. Takk.

PS: Mig langar að biðjast afsökunar á ógeðfelldum flóðbylgjubröndurum framar í færslunni. Auðvitað verða að líða tvö ár frá harmleik til að það sé viðeigandi að spauga með hann. Sorrý. Fór bara aðeins fram úr sjálfum mér.

...djók

sunnudagur, febrúar 12, 2006

Ég elska Einar Bárðarson

Deep Purple
Van Morrison
José Carreras
Alice Cooper
Shadows
Joe Cocker
Kiri Te Kanawa
Katie Melua

Og nú: Mikhail Gorbatsjov. Þetta er frétt ársins. Eða allavega mánaðarins.

Á leið upp Laugaveginn áðan gekk ég fram hjá a.m.k. fjórum bílum með opna glugga sem úr ómaði verðandi Júróvisjon framlagið Til hamingju Ísland á hæsta styrk og lafmóð hálfælandi ungmenni héngu út um allar opnanir og gerðu mistækar tilraunir til söngs. Ég lít jákvæðum augum á þessa þróun. Tvímælalaust.

Smá könnun að lokum: Af hvoru stafar meiri ógn, fuglaflensunni eða skopmyndamaníunni? Svör óskast.

fimmtudagur, febrúar 09, 2006

Hönnunarslys

Það hefur augljóslega eitthvað verið gert vitlaust þegar það er meira rok inni í strætóskýlinu heldur en fyrir utan.