Mér er það lífsins ómögulegt að hnoða saman einhverjum lista yfir það hverjar þeirra 53 kvikmynda sem ég sá í bíó í fyrra hafi borið af. Þess vegna ætla ég að vísa ykkur beina leið á
listann hans Krumma, sem er hvort eð er mikið betri en sá sem ég hefði gert.
Í fyrra gerði ég lista yfir þær kvikmyndir sem ég hlakkaði hvað mest til að sjá á nýju ári. Ég er að spá í að gera það aftur. Á listanum eru myndir sem hafa áætlaðan útgáfudag árið 2006 í Bandaríkjunum eða árið 2005 og hafa ekki enn verið teknar til sýninga hér. Þetta gæti líka þýtt að myndir sem komast á þennan lista verði ekki sýndar á Íslandi fyrr en árið 2007, eða jafnvel síðar. Þetta gæti orðið langt...
Fyrst koma þær tuttugu myndir sem ég bíð hvað spenntastur eftir:20. Miami ViceMichael Mann í Miami, með Colin Farrell og Jamie Foxx eitursvala, ekki í eitísjakkafötum, en í jakkafötum þó. Mann kann að setja söbstans í stílinn sinn, eitthvað sem margir mættu temja sér.
19. Sin City 2Sin City var flott mynd - algjör rússíbani og stjórnlaust fjör - en hún virkaði samt meira á mig eins og frábær sjónvarpsþáttur en heilsteypt kvikmynd. Það dró svosem ekkert úr ánægjunni, en mér fannst eitthvað pínulítið snubbótt við hana. Það breytir því ekki að ég get ekki beðið eftir framhaldinu, hverjir sem koma til með að leika í því.
18. Shoot 'Em UpÞetta verður eitthvað tryllt. Í stuttu máli er konseptið þetta: Clive Owen tekur á móti barni í miðjum skotbardaga og þarf síðan að vernda það fyrir morðóðum vígamönnum. Afgangurinn af myndinni verður að mestu hann í byssubardögum við mest extrím aðstæður sem hægt er að hugsa sér. Það er ekki annað hægt að bíða spenntur eftir útkomunni.
17. Youth Without YouthFyrsta mynd Francis Ford Coppola í níu ár og í þetta skiptið ætlar hann að tækla bíódramað með - vertu tilbúinn - Tim Roth og Bruno Ganz í aðalhlutverkum. Ég veit ekki alveg hvað er í gangi en eitthvað er það og ég vil kynnast því.
16. All the King's MenÞetta er endurgerð á samnefndri mynd frá 1959 og þó að ég bókstaflega hati síðustu mynd Steves Zaillians, A Civil Action, þá er leikaraliðið hér bara of gott til að hægt sé að líta framhjá því. Sean Penn, Jude Law, Mark Ruffalo, Kate Winslet, Anthony Hopkins og James Gandolfini. Sony ætlaði að hefja sýningar á henni núna í nýliðnum desember en þeir vildu fikta eitthvað í henni á síðustu metrunum og af því að myndin þykir svo óskarsvæn var ákveðið að fresta henni um heilt ár, fram í desember á þessu ári. Hlýtur að vera vit í þessu.
15. Children of MenAlfonso Cuarón veit hvað hann er að gera. Ef hann fær skáldsögu eftir P.D. James upp í hendurnar og Clive Owen, Charlie Hunnam og Julianne Moore til að stýra þá held ég að það þurfi eitthvað mikið að gerast til að það klikki.
14. Pirates of the Caribbean: Dead Man's ChestPirates of the Caribbean var besta skemmtun ársins 2003. Ég mundi fara á átta tíma einleik með Johnny Depp sem Jack Sparrow. Það skiptir í rauninni engu máli hvað Gore Verbinski gerir - ef hann hefur Johnny Depp og böns of monní þá getur ekkert komið út úr því nema gleði.
13. Match PointÞví meira sem ég heyri um þessa mynd eftir Woody Allen þeim mun áfjáðari verð ég í að sjá hana. Fólk kallar þetta meistaraverk og bestu mynd Allens síðan hann gerði Manhattan fyrir 27 árum. Gamanmynd? Spennumynd? Drama? Ég veit það ekki, og mér er í rauninni alveg sama.
12. Talladega Nights: The Ballad of Ricky BobbyWill Ferrell og Adam McKay snúa bökum saman á ný og þeir sem hafa séð Anchorman vita að það eru góðar fréttir. Í þetta skipti bregður Ferrell sér í hlutverk Nascarkeppanda, væntanlega með hlægilegum afleiðingum. John C. Reilly leikur aðstoðarmanninn hans og Sacha Baron Cohen leikur illa franska keppinautinn. Þetta verður alltaf fyndið.
11. The PrestigeChristopher Nolan tekur sér frí frá Batman en kippir Christian Bale með sér í fríið og skellir honum í annað aðalhlutverkið í þessari, á móti úlfynjunni Hugh Jackman. Þeir leika galdramenn sem kljást hatrammlega um aldamótin 1900 með óþægilegum afleiðingum. Hertoginn sjálfur, David Bowie, fer með hlutverk Nikola Tesla og Michael Caine og Scarlett Johansson loka leikarahringnum. Nolan hefur enn ekki misstigið sig og ég get ekki séð ástæðu fyrir því að það ætti að breytast.
10. The Assassination of Jesse James by the Coward Robert FordÓþjálasta nafn allra tíma...en verður vonandi hörkumynd. Andrew Dominik, sem gerði Chopper með Eric Bana á sínum tíma, leikstýrir Brad Pitt í hlutverki útlagans Jesse James og Casey Affleck í hlutverki Roberts Ford. Svo er Sam Rockwell þarna líka einhvers staðar. Þetta verður hart.
9. The DepartedÉg lít jákvæðum augum á þetta DeNíróska ástfóstur sem Martin Scorcese hefur tekið við Leonardo DiCaprio. DiCaprio er bara svo góður leikari. Gangs of New York var góð (víst var hún góð), Aviator var góð og þessi verður góð. Ég meina, þess hefur verið beðið í 35 ár að Scorcese leikstýri Jack Nicholson. Nú gerist það. Kryddið með Matt Damon, Mark Wahlberg, Alec Baldwin, Martin Sheen og handriti sem William Monahan, einn eftirsóttasti handritshöfundur samtímans, vann upp úr marglofaðri kínverskri mynd og þá fáiði eitthvað mjög gott, ég trúi ekki öðru.
8. BabelAmores Perros var góð, 21 Grams var betri og nú er bara að vona að Babel toppi þær báðar. Alejandro González Iñárritu heldur áfram á sömu braut með þrískiptu grúppurómönuna, í þetta sinn með Brad Pitt, Cate Blanchett og Gael Garcia Bernal í aðalhlutverkum. Hvert öðru betri leikarar og öruggur sigur nema Iñárritu fari að fikta um of með formið.
7. There Will Be BloodÞað er afskaplega bjartsýnt að setja þessa næstu mynd Pauls Thomas Anderson (Hard Eight, Boogie Nights, Magnolia, Punch-Drunk Love) á þennan lista vegna þess að sennilega mun hún ekkert koma út á þessu ári.Ég ætla þó að halda í vonina. Það hafa verið uppi sögusagnir um að hann ætli að fá Daniel Day Lewis í aðalhlutverkið, sem væri auðvitað guðdómlegt, og líklega má búast við fastagestum eins og Philip Seymour Hoffman, John C. Reilly og Philip Baker Hall þarna líka. Þessi mun fjalla um vafasöm olíuviðskipti í miðausturlöndum. Snilld, hvernig sem fer.
6. V for VendettaÉg hef heyrt of góða hluti um þessa mynd til að vera ekki losandi hland í þessum skrifuðu orðum. Wachowski bræður ýjuðu að því að þeir væri talentlausir með Matrix-framhöldunum en ef marka má umfjöllun sem V for Vendetta hefur fengið þá munu þeir svo sannarlega hljóta uppreisn æru í ár. Þessi er byggð á átján ára gamalli myndasögu sem ég ætla ekki að þykjast þekkja - en áleitnin er víst ofboðsleg og fólk er þegar farið að tala um þessa mynd sem þá mikilvægustu sem koma mun út í ár.
5. Stranger Than FictionÓkei. Marc Forster (Monster's Ball, Finding Neverland) leikstýrir Will Ferrell í mynd um mann sem einn daginn byrjar að heyra narrasjón af eigin lífi í höfðinu á sér. Handritshöfundurinn, Zach Helm, þykir eitthvert prodigískt viðundur og það er þegar farið að nota þetta handrit við kennslu í kvikmyndaskólum vestra. Emma Thompson, Maggie Gyllenhaal, Dustin Hoffman, og Tony Hale (Buster í Arrested Development) eru meðal annarra leikara.
4. MünchenÉg neita að kalla þessa mynd Munich...hún heitir eftir borginni München sem heitir bara München, og hananú. Mér er alveg sama þótt München hafi ekki fengið jákvæðar viðtökur hjá öllum í heiminum. Allir gagnrýnendur aintitcool.com, Harry, Moriarty, Quint, Massawyrm og Capone kalla þessa mynd meistaraverk, eina allra bestu mynd Spielbergs og eina bestu mynd síðasta árs. Roger Ebert gefur fjórar stjörnur af fjórum og kallar myndina eina bestu mynd Spielbergs. James Berardinelli gefur fjórar af fjórum og kallar eina bestu mynd Spielbergs. Kirk Honeycutt gefur A. Ég vil sjá þetta núna.
3. Southland TalesEnn bíða allir eftir því að sjá hvernig Richard Kelly ætlar að fylgja Donnie Darko eftir. Þessi mynd var á listanum mínum í fyrra og er þar enn. Leikaraliðið er fuuuuurðulegt. Kletturinn sem minnislaus hasarmyndahetja, Sean William Scott sem hjólalögga (og tvíburi), Sarah Michelle Gellar sem klámstjarna, og þar að auki Mandy Moore, Justin Timberlake, Christopher Lambert, Jon Lovitz, Janeane Garofalo og Kevin Smith sem lappalaus stríðkempa í hjólastól. Plottið er enn að mestu á huldu en ég hef enga trú á öðru en Richard Kelly hafi gert eitthvað frekar öflugt úr þessu.
2. ZodiacJá, David Fincher mun sanna það fyrir heiminum í ár að hann getur betur en Panic Room. Jake Gyllenhaal, Mark Ruffalo og Robert Downey Jr. leika aðalhlutverkin í þessum glæpatrylli um einhvern óttaðasta raðmorðingja í sögu Bandaríkjanna. Í rauninni er ekkert meira um að það að segja. Svo bíður maður bara eftir Benjamin Button á næsta ári, með Brad Pitt og Cate Blanchett (eru þau samvaxin?).
1. The FountainÞessi var líka á listanum mínum í fyrra og hún fer sko ekki fet. Gerist á þrjúþúsund ára tímabili og fjallar um leit að eilífu lífi. Hugh Jackman og Rachel Weisz hafa líklega rúllað þessu upp (þau tóku við af síamstvíburunum Brad Pitt og Cate Blanchett). Darren Aronofsky er einn af snillingum okkar tíma og með þessari mynd ætlar hann að taka af allan vafa um það. Sjáið til.
Hér eru fleiri myndir sem ég hlakka til að sjá en náðu ekki inn á listann:300Fornsaga í leikstjórn Zacks Snyder (Dawn of the Dead endurgerðin) gerð eftir myndasögu Franks Miller (Sin City). Hljómar spennó.
Arthur & the MinimoysÞetta lítur út eins og eitthvað spaug. Luc Besson leikstýrir Freddie Highmore í hlutverki stráks í fjársjóðsleit sem ráfar inn í ævintýraland þar sem hann finnur pínkuponsulítið fólk sem talsett er af David Bowie, Snoop og Madonnu. Ég veit a.m.k. að ég mun sjá þetta.
The Black DahliaBrian DePalma er sorglega mistækur leikstjóri en þessi noir-mynd gerð eftir bók James Ellroy (L.A. Confidential) lofar góðu. Josh Hartnett, Scarlett Johansson og Hilary Swank leika.
Brokeback MountainÞað er búið að lofa þessa mynd of mikið til að maður hlakki ekki til hennar. Hommakúrekar í sveitinni. Örugglega ægilega hugljúft og erfitt. Fær sennilega óskar sem besta mynd í ár.
CapoteÉg vil sjá Philip Seymour Hoffman. Held að þessi mynd sé í raun ekki mikið annað en hans frammistaða. Ætli það megi ekki kalla það nokk ljóst að hann fái óskarinn.
Deja VuTony Scott og Denzel gera bara svalt dót. Nú er tímaflakk í spilinu. Ég sé fram á harðan, svipbrigðalausan en jafnframt ringlaðan Denzel með nóg af látum og athyglisbresti, hröðum klippingum og of háum kontrast.
The Fantastic Mr. FoxWes Anderson er séní á allan hugsanlegan máta. Nú ætlar hann að vinna úr barnabók Roalds Dahl og ég gæti ekki verið ánægðari.
Flushed AwayLiðið á bakvið Wallace & Gromit gerir mynd um rottu í stórborginni. Með talsetningu fara Hugh Jackman, Kate Winslet, Ian McKellen, Andy Serkis, Bill Nighy og Jean Reno, meðal annarra. Verður örugglega ferskt.
The Good GermanLeikstjórinn er Steven Soderbergh, sögusviðið er Berlín á eftirstríðsárunum og leikarar eru George Clooney, Cate Blanchett, Tobey McGuire og Beau Bridges. Gæti brugðið til beggja vona, en ég hef trú á Soderbergh, af einhverri undarlegri ástæðu.
Good Night, and Good LuckÞessi var nálægt því að komast á topp tuttugu. Clooney leikstýrir pólitískri ádeilu sem er örugg með býsn af óskarstilnefningum. Svarthvítt og kósí.
The Good ShepherdFyrsta leikstjórnarverkefni Robert DeNiro í tólf ár. Hann rekur sögu CIA og leikur sjálfur ásamt Matt Damon, Angelinu Jolie, Joe Pesci, Alec Baldwin, Billy Crudup, John Turturro, William Hurt, Michael Gambon og Jason Patric. Ekki slæmt.
Grind HouseÞessi slapp nánast inn á listann. Tarantino og Robert Rodriguez gera tvískipta hrollvekju sem eflaust verður fyndin og ógeðsleg og hvaðeina sem þeim dettur í hug.
IdiocracyMike Judge hefur ekkert gert síðan hann gerði Office Space fyrir átta árum. Nú er á leiðinni mynd eftir hann með Luke Wilson í aðalhlutverki. Wilson leikur mann sem er frystur og vaknar árið 3001 þegar mannkynið hefur forheimskast og siðmenningin er dauð. Ég sá óskaplega jákvæðan dóm um handritið einhvers staðar.
Inland EmpireDavid Lynch. Þarf að segja meira? Hann hefur fengið sína gömlu samstarfsvinkonu Lauru Dern aftur til liðs við sig. Sjáum hvað hann gerir.
Inside ManÞað munaði ekki miklu að þessi færi á listann. Spike Lee leikstýrir Denzel, Clive Owen og Jodie Foster í mynd um misheppnað bankarán sem endar með gíslatöku. Hilarity ensues (eða er það ekki?)
JarheadNýja myndin hans Sam Mendes (American Beauty, Road to Perdition) sem verður frumsýnd hér á landi hvað á hverju. Hún hefur ekki fengið neina rífandi dóma en mig dauðlangar samt að sjá hana. Jake Gyllenhaal, Jamie Foxx, Chris Cooper og Peter Sarsgård eru flottur pakki.
Lucky YouCurtis Hanson (L.A. Confidential, Wonder Boys, 8 Mile) leikstýrir Eric Bana og Drew Barrymore í mynd um pókerspilara í Vegas. Hljómar ágætlega.
Master of Space & TimeMichel Gondry gerði bestu mynd ársins 2004, Eternal Sunshine of the Spotless Mind, og ætlar nú að fríka út með meistara útfríksins, Jack Black, í mynd sem fjallar um vísindamenn sem uppgötva leið til að stjórna raunveruleikanum.
Pan's LabyrinthNý hryllingsfantasía frá Guillermo del Toro (Hellboy) á spænsku. Það sem ég hef séð úr þessari mynd er bara svo flott að ég verð að sjá meira.
Science of SleepÖnnur mynd frá Michel Gondry. Hér leikstýrir hann Gael Garcia Bernal í mynd um drauma og undirmeðvitund, sem virðist vera honum svo ósköp hugleikin.
ScoopWoody Allen hefur fengið eintómt lof fyrir Match Point og í Scoop endurnýjar hann kynnin við Scarlett Johansson en lætur hana núna eiga í ástarsambandi við Hugh Jackman. Ef hann heldur dampi þá verður þetta mjög gott.
Smokin' AcesJoe Carnahan tókst frábærlega upp með Narc árið 2004 og nú er að sjá hvað hann gerir við þetta verkefni. Leikaraliðið er vafasamt; Ben Affleck, Andy Garcia, Ryan Reynolds, Jeremy Piven og Alicia Keys en Don Cheadle, Ray Liotta og Jason Bateman geta kannski bjargað því og gert almennilegheit úr þessu.
SunshineDanny Boyle er á miklu flugi og þetta sólarferðalag hans með Cillian Murphy í fararbroddi lofar góðu. Svo þarf ég bara að sjá Millions, sem mér skilst að sé dúndurflott.
SyrianaStephen Gaghan, handritshöfundur Traffic, leikstýrir hér George Clooney, Chris Cooper, Matt Damon og fleirum í hápólitískri ádeilu á olíuiðnaðinn í miðausturlöndum (er P.T. Anderson of seinn?). Ég hef gaman af svona.
The VisitingNú er Oliver Hirschbiegel (Der Untergang) mættur í land tækifæranna. Hans fyrsta verkefni verður að leikstýra Nicole Kidman og Daniel Craig í einhverskonar geimveru-sálfræðitrylli. Er það ekki alltaf fjör?
Walk the LineSkilst að Joaquin Phoenix og Reese Witherspoon séu yfirgengilega góð - syngja meira að segja sjálf. Það er í sjálfu sér alveg næg ástæða til að vera spenntur. Ég held að sagan sé ekki sérlega rismikil.
The Weather ManGore Verbinski kúplar sig út úr tæknibrellunum og látunum í örskotsstundu og leikstýrir Nicholas Cage í þunglyndislegri mynd um veðurfræðing sem neyðist til að taka afstöðu til lífsins. Hefur fengið flotta dóma.
Hér eru svo að síðustu myndir mig langar að sjá en er samt smeykur um að verði einhverkonar dísaster:16 BlocksBruce Willis með mústasj í löggubúningi og Mos Def sem vitni í handjárnum þurfa að komast í gegnum hostílt glæponahverfi. Það reynist örðugt. Hér gæti margt farið úrskeiðis enda Richard Donner ekki gert góða mynd í sautján ár.
ApocalyptoMel Gibson er búinn að tapa glórunni. Mynd um Maya á indíánamáli. Gæti orðið áhugavert, gæti líka orðið viðurstyggilega leiðinlegt.
Ask the DustRobert Towne er snillingur. Hann skrifaði handritið að Chinatown og fyrir það verður hann alltaf í guðatölu. En þessi mynd sem hann er með í burðarliðnum hljómar bara eins og eintóm leiðindi. Gerist í Suður-Ameríku á krepputímanum og skartar Sölmu Hayek og Colin Farrell í aðalhlutverkum. Ég er voða smeykur um að þetta verði bara Hús andanna 2.
BobbyEmilio Estevez er mættur aftur til leiks og er búinn að sanka að sér risastórum leikarahóp, sem inniheldur burn-out, meistara og poppara, fyrir þessa mynd. Hann er með pabba gamla, Martin Sheen, Demi Moore, Sharon Stone, Helen Hunt, Christian Slater, Heather Graham, William H. Macy, Laurence Fishburne, Shia LeBouf, Lindsay Lohan, Mandy Moore, Anthony Hopkins, Mos Def og Elijah Woods, að ógleymdum Harry Belafonte. Myndin fjallar um fólk á hótelinu þar sem Robert Kennedy var skotinn. Hljómar ekkert of spennandi...en við skulum sjá hvort Estevez hefur einhverja hæfileika eftir allt saman.
Casino RoyaleJames Bond hefur ekki verið skemmtilegur síðan einhvern tíma á síðustu öld, og vel það. Það voru banal mistök að ráða ekki Tarantino til að lífga þennan varning við. Ég meina, er það ekki ágætt hint að ENGIN leikkona er til í að taka að sér hlutverk Bondstúlkunnar og að þeir þurftu að leita í fleiri ár að leikara þangað til einhver var til í tuskið? Að því sögðu þá fíla ég Daniel Craig mjög vel...
Da Vinci CodeMér fannst þessi bók ómerkileg. Ég hefði allt eins getað fengið allar þessar samsæriskenningar á þremur útprentuðum A4 blaðsíðum og skemmt mér jafnvel...Dan Brown er ekki rithöfundur fyrir fimmaur. Auk þess þoli ég ekki Ron Howard - að Arrested Development narrasjóninni undanskilinni hefur hann ekkert gert af viti síðan The Paper fyrir ellefu árum.
Hins vegar held ég að þessi saga henti ótrúlega vel sem kvikmynd - enda á köflum skrifuð eins og kvikmyndahandrit - og mér finnst líka magnað hvað þeim tókst að draga mikið úr asnalegheitum Toms Hanks. Svo er Audrey Tautou líka sæt.
Flags of Our FathersÉg ætti að vera helspenntur fyrir þessari mynd en það er bara eitthvað fráhrindandi við þá staðreynd að myndir séu að miklu leyti teknar á Íslandi. Ég veit ekki hvað það er.
Hail CaesarHvað eru Coen-bræður að gera þessa dagana? Ladykillers og Intolerable Cruelty eru fyrstu skrefin í átt að ferilsmorði og ég vona að þeir reddi sér með þessari. Ég er samt ekkert of bjartsýnn.
Lady in the WaterÆtli Shayamalan takist að reka af sér slyðruorðið eftir Village, sem mæltist nú ekki svo vel fyrir hjá gagnrýnendum, eða almenningi? Ég vona það, því ég nenni ekki að sjá hann draga Paul Giamatti með sér í einhverja vitleysu.
Mission: Impossible IIIEf þeir sleppa grímufarsanum úr síðustu mynd þá gæti þetta sloppið. Philip Seymour Hoffman ætti að geta verið ógeðslegur vondur gæi. Trailerinn er hins vegar almennt slakur.
PoseidonWolfgang Petersen endurgerir mynd frá 1972 með Kurt Russell og Richard Dreyfuss. Haha. Mig grunar að þetta verði bara vond Titanic. En maður skal þó aldrei segja aldrei. Kannski verður eitthvað vit í þessu. Maður má ekki gleyma því að Petersen
er maðurinn sem gerði Das Boot.
RevolverFólk hefur hatað á þessa mynd og kallað hana óskiljanlega þvælu, sagt Guy Ritchie vera búinn að missa það og Madonnu vera ógeðslega. Ég ætla að gefa Revolver séns. Ég held að það komi nefnilega alveg til greina að fólk bara nái henni ekki.
A Scanner DarklyKeanu Reeves er óþolandi. Richard Linklater er erfiður. Ég vona að þeim takist að kýla saman einhverja snilld í teiknimyndaprógramminu sínu. Annars er illa farið með Philip K. Dick.
Superman ReturnsTrailerinn fyrir þessa mynd er glataður. Superman er leiðinleg persóna. Það mun koma mér á óvart ef ég fíla þetta og ég veit að það verður þá bara Kevin Spacey að þakka.
World Trade Center (ekki nefnd enn)
Mér finnst ekkert of snemmt fyrir Oliver Stone að tækla ellefta september. Ég er bara efins um að hann eigi eftir að gera það almennilega. Ég held að það sé of mikið magn fíkniefna í líkamanum á honum til að hann geti hugsað skýrt. Við fáum bara einhverja nakta indíana á Ground Zero.
X-Men 3Ég sá auglýsingu fyrir þessa mynd í bíó áður en það var búið að ákveða hver ætti að leikstýra henni. Það var ekki einu sinni búið að skrifa handritið. Ég er ekki einu sinni viss um að það hafi verið búið að ákveða
hver ætti að skrifa handritið. En Brett Ratner er...Brett Ratner. Nýju karakterarnir lúkka ágætlega en það er ekki þar með sagt að Ratner geti gert eitthvað af viti við þá. Mér fannst þetta líka verið orðið frekar útþynnt í síkvelnum (já, mér fannst númer eitt betri, só sú mí).
Hana.