Er þessi framsóknarbrandari ekki að verða búinn að ganga aðeins of langt? Ekki misskilja mig, mér fannst þetta fyndið í smá stund, svona um það leyti sem Dóri varð forsætisráðherra. Svo er samt ýmislegt meira gott búið að vera í gangi. Kristinn H. Gunnarsson heldur uppteknum hætti og setur sig undantekningarlaust upp á móti öllu sem framsókn stendur fyrir en er samt kosinn vinsælasti framsóknarmaðurinn á þeirra eigin vefsíðu. Ritstjóri helsta málgagns framsóknarmanna á netinu er svarinn hatursmaður fyrsta borgarfulltrúa síns eigin flokks. Magnússon bræður reyna hvað þeir geta að ná flokknum á sitt vald og senda eiginkonurnar to do their dirty work, búnar að smala saman tæpum fjórum tylftum sauðhugsa vinkvenna. Það fer eitthvað í taugarnar á Siv bækergörl, sem var þegar orðin ósköp pirruð út í kallana eftir ráðherrastólsmissinn, og hún er með uppsteyt á fundi kvenfélagsins, sem hún er ekki einu sinni meðlimur í af einhverjum ástæðum. Nú er hún örugglega pirruð út í alla. Til að kóróna allt saman er comic relief ríkisstjórnarinnar, Guðni 'Pulsa' Ágústsson, orðinn sitjandi forsætisráðherra. Fer þetta ekki að hætta að vera fyndið?