laugardagur, október 30, 2004

Hver ætlar að koma með mér á tónleika Sinfóníunnar og Ný Danskrar föstudaginn 5. nóvember?

miðvikudagur, október 27, 2004

Skemmtileg saga:

Árið 1990 hitti tónlistarmaðurinn Frank Zappa leikskáld nokkurt í Prag, Vaclav Havel að nafni. Havel hafði alltaf verið gríðarmikill aðdáandi Zappa og hélt því meira að segja fram að tónlist hans hafi átt stóran þátt í andkommúnismabyltingunni þar í landi. Þannig var nefnilega að tékkneska hljómsveitin The Plastic People of the Universe, sem var nefnd eftir einu lagi Zappa og stældi tónlist hans, hafði vakið mikla athygli í neðanjarðarmenningunni þar ytra og það varð á endanum til þess að ríkisstjórnin þar henti meðlimum sveitarinnar bakvið lás og slá fyrir friðarrof vegna byltingarkenndra texta. Þetta virkjaði Havel og aðrar listaspírur í að mynda mótmælendakjarna sem leiddi andstöðuna og mynduðu svo kjarna nýrrar ríkisstjórnar landins eftir að kommúnísku stjórninni hafði verið bylt. Vaclav Havel hætti sem forseti landins í fyrra.

Havel átti því Zappa margt að þakka og á þessum fyrsta fundi þeirra árið 1990 kom þeim svo vel saman að Havel, af hvatvísi einni saman, bjó til sérstaka sendiherrastöðu fyrir Bandaríkjamanninn Zappa. Þegar Zappa yfirgaf Prag nokkrum dögum síðar var hann opinber viðskipta-, menningar- og ferðamálasendiherra Tékklands í Bandaríkjunum og var hylltur af hundruðum tékkneskra aðdáenda sem komu fram við hann eins og þjóðhetju.

Víkur nú sögunni að James Baker, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna og núverandi sérlegs erindreka Bush forseta í Mið-austurlöndum við að útmá skuldir Íraks við þau. Árið 1985 hafði kona hans, Susan Baker, í félagi við margar áhrifamiklar embættismannafrúr, t.a.m. Tipper Gore, stofnað svokallaða Tónlistarrannsóknarmiðstöð foreldra. Markmið samtakanna var að innleiða tónlistarflokkunarkerfi, áþekkt því sem notað er við eftirlit kvikmynda, byggt á klámfengni og ofbeldi í innihaldi.

Frank Zappa, sem notaðist við ýmis form sóðaskaps í sínum textum, kom fram opinberlega stuttu seinna til að gagnrýna þessar fyrirhuganir miskunnarlaust. Þar kallaði hann Susan Baker og vinkonur "lífsleiðar Washington húsmæður" og hermdi í senn eftir suðurríkjahreim Susan. Þetta voru ekki allir jafn ánægðir með og var Zappa m.a. úthrópaður "ruddalegur, ótrúlega og ólýsanlega móðgandi" í kjölfarið.
Þessu hafði James Baker ekki gleymt þegar hann kom til Prag tveimur vikum eftir að Zappa sneri heim þaðan árið 1990. Til að gera langa sögu stutta þá mæltist Baker til þess, með því að gefa ýmislegt í skyn notandi vafasama frasa, að Zappa yrði sviptur sendiherratitlinum. Áfjáðir í að þóknast utanríkisráðherra stærsta veldis veraldar ákváðu Tékkar því að titillinn skyldi burt af pappírum. En Havel var ekki á þeim buxunum að leysa Zappa algerlega frá störfum, svo Zappa var þegar skipaður óopinber menningarsendiherra Tékklands í Bandaríkjunum og því starfi sinnti hann með sóma allt til dánardags.

Boðskapur þessarar sögu er sá að úrvættin safnast að George W. Bush líkt og mý að mykjuskán. Langsótt? Kannski. En sagan er góð þrátt fyrir það.

þriðjudagur, október 26, 2004

"America national sport is called baseballs. It very similar to our sport, shurik, where we take dogs, shoot them in a field and then have a party."

Ég get ómögulega mælt nógu mikið með því að fólk horfi á Ali G in da USAiii dvd diskinn í heild sinni og gráti úr sér glyrnurnar af gamni einu saman.

sunnudagur, október 24, 2004

Samkvæmt mínum fræðilegustu útreikningum er núna 24. október. Hvað á það að þýða að það sé fluga flögrandi um herbergið mitt? Þetta er eins og ef það væri ísbjörn í herberginu mínu í júlí. Eða...þið vitið...

mánudagur, október 11, 2004

Ég þurfti að fara upp til pabba áðan að prenta út heimaverkefni (kallinn er s.s. með skrifstofu uppi á háalofti). Á skrifborðinu hans fann ég vægast sagt undarlegt blað. Á það eru skrifuð eftirfarandi nöfn án nokkurra frekari útskýringa eða athugasemda:

Martha Stewart
J.K. Rowling
Princess Diana
Tom Cruise
Renée Zellweger
David Bowie
Wolfgang Amadeus Mozart
Mick Jagger
John Lennon
Sven-Göran Ericson
Jennifer Saunders
Wayne Rooney
Björk
Nigella Lawson
Cherie Blair
John Redwood
Jude Law
Iman
Yoko Ono
Meg Whitman
Donatella Versace
Aristotle
Alexander the Great
George Orwell
Robert Kilroy-Silk
P.D. James
Theresa May
Kylie Minogue

Nöfn Jagger, Díönu og Rowling eru feitletruð, og nafn Cherie Blair skrifað með bláu letri.

Getur einhver útskýrt fyrir mér hvers vegna pabbi minn var með þessi nöfn á blaði á skrifborðinu sínu? Hvað á þetta fólk sameiginlegt? Þarf ég að óttast föður minn? Er eitthvað meira í gangi?

miðvikudagur, október 06, 2004

Einn alveg fokkt á því...

*Snertir eigin fagurlega sköpuðu magavöðva ofurlétt með þremur fingrum hægri handar í því skyni að gera öðrum ljóst um hvern ræðir*

Ég er hef enn ekki lesið draslgat fyrir bókmenntafræðina. Það er slæmt, en þó eðlilegt. Skruddurnar eru jú á norsku, og norska er jú eitthvað asnalegasta tungumál sem um getur. Hinir kúrsarnir ganga eins og í stórkostlegustu ýkjusögu, enda allir á hálfgerðum Grundschulekaliber enn sem komið er.

Á laugardaginn var varð ég af skemmtun í formi haustferðar Mímis vegna ofsvæfis. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem svefn kostar mig fjör. Kannski ég ætti að leita mér hjálpar. Sjónvörpun enska boltans á Skeinum hefði gert þessa heimasetu naumþolanlega ef ekki hefði verið fyrir fullt hús af skríkjandi smástelpum sem voru samankomnar í stofunni heima undir því yfirskyni að þær væru að "halda uppá afmælið hennar Brynju", en ég þykist þó fullviss um að þær hafi dúkkað upp úr engu til þess eins að rúinera endanlega fyrir mér hálfónýtan dag. Það vill nefnilega svo til að ég er bróðir systur minnar og því veit ég fullvel að hún á ekkert afmæli í október. Hún á afmæli 12. júlí, sem leið hjá fyrir rúmum tveimur og hálfum mánuði, og þess vegna skil ég ekkert í foreldrum mínum að taka þátt í þessum skrípaleik með pizzupöntun, kökubakstri og tilheyrandi. Þau eiga að vita betur.

Nú er maður farinn að venja komur sínar í musteri heilsunnar í Laugardalnum í von um að það að komast í eitthvað sem gæti kallast "viðunandi form". En þó að hreyfing skapi vissulega vellíðan þá skapar hreyfing líka þreytu og gerir mann bara almennt fokkt á því, sbr. ég í núverandi ástandi. Núna getur maður samt sagst vera "að fara í klassann", sem er óneitanlega mjög töff, og það eitt að muldra þetta upp úr eins manns hljóði vekur víst umsvifalaust aðdáun og hrifningu hins kynsins, óháð útliti manns. Eða það er a.m.k. það sem ég hef heyrt. Nei.

En þó ég sé tiltölulega fokkt á því í ýmsum skilningi eru þó ákveðin atriði sem forða mér frá ganz total fokki.

Ég fór t.d. í Skífuna í fyrradag, þrátt fyrir að það stríði gegn öllum mínum siðferðiskenndum og reglum sem dánlódnörd, og verslaði mér m.a. nýju Tom Waits plötuna, Real Gone. Virkilega, virkilega góð plata með ööörfáum vanköntum. Lagið Hoist that rag fer rakleiðis inn á topp 10 listann yfir bestu lög Waits frá upphafi. Það minnir mig pínulítið á lagið Work that pole með hiphop sveitinni Beatnuts. En bara pínulítið. Gítarfenómenið Marc Ribot fer þvílíkum hamförum á strengjunum í þessu lagi að ég get varla ímyndað mér annað en að allir þeir sem á það hlusti tapi úr líkama sínum einhverjum vessum eða úrgangi, hvort sem það er sviti, sæði eða saur. En þetta er ekki eina platan sem ég hef kaupt undanfarið, ekki aldeilis. Útsalan í Skífunni hefur nefnilega verið að gera ansi góða hluti. Síðan ég minntist síðast á plötukaup hef ég keypt eftirfarandi plötur:

And You Will Know Us By The Trail Of Dead - Source Tags & Codes
DJ Shadow - Entroducing
Gang Of Four - Entertainment
Lou Reed - New York
Morphine - Good
Nick Drake - Pink Moon
Non-Prophets - Hope
The Smiths - Hatful Of Hollow
The Stooges - Raw Power
Tom Waits - Real Gone

Allt alveg hreint óhemju gott stöff, nema hvað Hatful of Hollow pirrar mig smávegis. Ég held að það sé aðallega máttlausri útgáfu lagsins What difference does it make? að kenna...

Þessi gaur er hress. Hvað þá þessir öðlingspiltar. Og ekki má skilja þennan næsgæ útundan. Hvar væri heimurinn ef þessir menn væru ekki til staðar? (Engin kaldhæðni var fólgin í orðunum hér á undan (ekki þessum heldur...)).

PS: Egill og Hrafn fá þakkir fyrir þrælfínt ammli.

PPS: Er það bara ég eða er tilgangur geisladrifs sem ekki les geisladiska afskaplega lítill?

PPPS: Blogger er hommi.

----------------------------------------------------------------------

Færslumúsíkin!

Tom Waits - Hoist That Rag
Morphine - Have A Lucky Day
And You Will Know Us By The Trail Of Dead - Heart In The Hand Of The Matter
Megas - Jólanáttburður
Tim Buckley - Goodbye & Hello

sunnudagur, október 03, 2004

"Ég? Á lyfjum? Étið þér skít herra Walther!"

föstudagur, október 01, 2004

"Fuck me? Fuck you! Fuck you and this whole city and everyone in it. Fuck the panhandlers, grubbing for money, and smiling at me behind my back. Fuck the squeegee men dirtying up the clean windshield of my car. Get a fucking job! Fuck the Sikhs and the Pakistanis bombing down the avenues in decrepit cabs, curry steaming out their pores, stinking up my day. Terrorists in fucking training. SLOW THE FUCK DOWN! Fuck the Chelsea boys with their waxed chests and pumped up biceps. Going down on each other in my parks and on my piers, jingling their dicks on my Channel 35. Fuck the Korean grocers with their pyramids of overpriced fruit and their tulips and roses wrapped in plastic. Ten years in the country, still no speaky English? Fuck the Russians in Brighton Beach. Mobster thugs sitting in cafés, sipping tea in little glasses, sugar cubes between their teeth. Wheelin' and dealin' and schemin'. Go back where you fucking came from! Fuck the black-hatted Hasidim, strolling up and down 47th street in their dirty gabardine with their dandruff. Selling South African apartheid diamonds! Fuck the Wall Street brokers. Self-styled masters of the universe. Michael Douglas, Gordon Gecko wannabe mother fuckers, figuring out new ways to rob hard working people blind. Send those Enron assholes to jail for FUCKING LIFE! You think Bush and Cheney didn't know about that shit? Give me a fucking break! Tyco! Worldcom! Fuck the Puerto Ricans. 20 to a car, swelling up the welfare rolls, worst fuckin' parade in the city. And don't even get me started on the Dom-in-i-cans, 'cause they make the Puerto Ricans look good. Fuck the Bensonhurst Italians with their pomaded hair, their nylon warm-up suits, their St. Anthony medallions, swinging their, Jason Giambi, Louisville slugger, baseball bats, trying to audition for the Sopranos. Fuck the Upper East Side wives with their Hermes scarves and their fifty-dollar Balducci artichokes. Overfed faces getting pulled and lifted and stretched, all taut and shiny. You're not fooling anybody, sweetheart! Fuck the uptown brothers. They never pass the ball, they don't want to play defense, they take fives steps on every lay-up to the hoop. And then they want to turn around and blame everything on the white man. Slavery ended one hundred and thirty seven years ago. Move the fuck on! Fuck the corrupt cops with their anus violating plungers and their 41 shots, standing behind a blue wall of silence. You betray our trust! Fuck the priests who put their hands down some innocent child's pants. Fuck the church that protects them, delivering us into evil. And while you're at it, fuck JC! He got off easy! A day on the cross, a weekend in hell, and all the hallelujahs of the legioned angels for eternity! Try seven years in fuckin' Otisville, J! Fuck Osama Bin Laden, Al Qaeda, and backward-ass, cave-dwelling, fundamentalist assholes everywhere. On the names of innocent thousands murdered, I pray you spend the rest of eternity with your seventy-two whores roasting in a jet-fueled fire in hell. You towel headed camel jockeys can kiss my royal Irish ass! Fuck Jacob Elinski, whining malcontent. Fuck Francis Xavier Slaughtery, my best friend, judging me while he stares at my girlfriend's ass. Fuck Naturel Rivera. I gave her my trust and she stabbed me in the back. Sold me up the river. Fucking bitch. Fuck my father with his endless grief, standing behind that bar. Sipping on club soda, selling whiskey to firemen and cheering the Bronx Bombers. Fuck this whole city and everyone in it. From the row houses of Astoria to the penthouses on Park Avenue. From the projects in the Bronx to the lofts in Soho. From the tenements in Alphabet City to the brownstones in Park slope to the split levels in Staten Island. Let an earthquake crumble it. Let the fires rage. Let it burn to fuckin ash then let the waters rise and submerge this whole, rat-infested place. No. No, fuck you, Montgomery Brogan. You had it all and then you threw it away, you dumb fuck!"