Útlistun á atburðum gærdagsins:
Ég vaknaði klukkan 6:20, áður en vekjaraklukkan hringdi. Klæddi mig og sitthvað fleira, og skundaði svo uppí skóla. Fór með Yngva inn í operation room og sötraði eitt stykki bjór áður en ég fór í morgunmatinn. Morgunmaturinn var hálflélegur eitthvað, hefði kannski verið betri ef ég hefði ekki verið aftastur í röðinni og fengið eitthvað meira en áleggslaust brauð. Eftir það var tekinn smá operation room pakki og svo farið til Kidda í gallann. Þaðan var farið í partý til Freydísar þar sem 80's rokkhljómsveitin var mætt. Þar tókst mér (og eflaust einhverjum fleirum) að verða vel við skál, sem var í lagi. Í kringum ellefu leytið fékk ég svo far hjá Birni Steinari niður í MH og dreif mig inn að sjá dimmisjón atriðin. Það var mikið af góðu stöffi í gangi, en það var að sjálfsögðu ekki fyrr en við stigum á svið sem allt trylltist. Sælutilfinningin var ekkert eðlileg, þrotlausar æfingar fimmtudagsins (12 tímar af æfingu...better believe it...) borguðu sig svo sannarlega. Sólveig Helgadóttir á kvót gærdagsins:
"Þetta var geðveikt atriði, en það sem er leiðinlegt við þetta er að þið eruð búnir að eyðileggja dimmisjón fyrir öllum næstu árin." Ég er ekki sammála því að það sé leiðinlegt. Eftir atriðið fórum við í smávegis sigurfagnað í operation room og horfðum á upptöku af atriðinu. Þegar allir dimmitantarnir höfðu lokið sér af safnaðist skarinn saman á sviðinu við undirleik MC Hammer. Við tókum góðan hóp-ella fremst á sviðinu við mikinn fögnuð áhorfenda. Því næst var haldið í partý til Helgu Huldar í tuttugu mínútur eða svo, eða alveg þangað til við röltum okkur uppá Hótel Loftleiði þar sem ætlunin var að snæða hádegisverð. Ég veit ekki hvaða pælingar flugu í gegnum hausinn á mér (og einhverjum öðrum sem ég kem ekki fyrir mig hverjir voru) á leiðinni, en mér fannst ég samt tilneyddur til að stoppa á Select á leiðinni og kíkja á eins og eina pulsu. Ég sá sko aldeilis ekki eftir því því að okkur var auðvitað ekki hleypt í mat á Loftleiðum. Reyndar fékkst að lokum leyfi til að kíkja á barinn, en ég beilaði á því og ákvað að fara ásamt Baldri og Freydísi til Bergþóru í bíl með mömmu hans Baldurs. Þar voru staddir skokkarar og fleiri góðir og bara almenn góð stemmning. Það leið þó ekki á löngu þar til útþráin fór að segja til sín. Stebbi og Baldur fóru heim að sofa, sem er auðvitað bara lélegt, og restin af flugmönnunum komu til Bergþóru svona tveimur mínútum eftir að þeir fóru. Þaðan fékk ég far með Bjarna Þór í bæinn. Ég, Bjarni, Kiddi og einhver annar minnir mig gerðumst menningarlegir og fórum á listasýningu Ólafs Elíassonar, lágum á gólfinu í speglashittinu og urðum helmingu fyllri en við vorum fyrir. Kíktum svo yfir götuna á Grillhúsið Tryggvagötu þar sem við hittum MC Hammer píurnar í góðu geimi. Við blönduðum mjög góðu geði við þær á meðan nokkrir okkar stöffuðu sig á hambó (ég ekki innifalinn). Eftir mátíðina var komið að öflugu múvi. Við fórum sex (Baldur og Stebbi voru heima að sofa og Siggi Kári týndist í bænum...) í bílinn hans Björns Steinars (vorum s.s. 7 í honum) og fórum uppá Loftleiði og þar var rakleiðis haldið í gufuna. Jói baðvörður var ekkert að kaupa okkur fyrst, en eftir að hann frétti að við værum í MH þá var allt meira en í góðu og Jói baðvörður á allan heiður skilinn. Þar sannaðist enn og aftur að MH er og verður laaaaangbesti skólinn. Sturta, gufa, sturta, svefn. Mjööööög gott. Ég (ásamt Birni og Yngva...og einhverjum gömlum kalli...) fékk mér ótrúlega góðan lúr í lúrherberginu þarna, frekar gay herbergi samt if you ask me. Fjórir naktir gaurar liggjandi hver á sínum bekk með ekkert að covera gúddsin. Ingi, Bjarni og Kiddi skelltu sér í sund á brókinni á meðan og voru svo bara kommandó frameftir kvöldi....góð pæling. Þegar við vorum aftur klæddir og komnir á gott ról var hringt í Adrian til að redda fari. Þegar Adrian kom var annar bíll samferða honum. Í honum var Guðrún Helga Bjarnakona, vinkona hennar að keyra, og enginn annar en rúllandi drukkinn Siggi Kári í aftursætinu. Við vitum ekki enn hvað hann var að gera þar. Adrian skutlaði mér, Inga, Birni og Yngva til Inga og hinir fóru bara heim í eitthvað rugl. Hjá Inga var ég orðinn vel ónýtur og ákvað að sofna sitjandi í stól, Birni til samlætis. Ingi og Yngvi voru ekki par ánægðir með svoleiðis aumingjaskap. Svo mætti Bjarni á staðinn, júníformlaus og að því er virtist muuuun fyllri en hann var áður en hann yfirgaf okkur, en þvertók fyrir það að hafa staðið að einhverju sumbli í fjarveru okkar. Við skemmtum okkur svo konunglega yfir Idolinu, þó svo að ég hafi verið semi sofandi allan tímann. Eftir smá stund voru allir mættir á svæðið, Stebbi og Baldur vel úthvíldir, Jökull og Óli, Guðrún Helga, Björn Steinar, vantaði bara Kidda sem var búið að vera að reyna að vekja síðustu klukkutímana og Sigga Kára sem enginn var að plana að vekja yfirleitt. Ungfrú Reykjavíkurpakkinn tekinn....mikið sköll í gangi þar. Svo í kringum hálf 12 var loksins farið á Jón Forseta, eða ekki Jón Forseta heldur einhvern sal á þeirra vegum. Allir í flugstjórajakkanum, flestir með gleraugun, nokkrir með flugstjórahúfuna, en bara tveir í öllum gallanum. Ég og Yngvi eigum mikið props skilið fyrir það. Stemmningin á þessu balli var með afbrigðum góð, mun betri en á mörgum "alvöru" skemmtistaðaböllum. Ég var aldrei spurður um ballmiðann minn, sem var líka eins gott, því ég var ekki með hann á mér. Ingi sýndi stórleik með flottasti stönti aldarinnar þegar hann ældi út um gluggann og sendi allan pakkann beint niður á Evu Hallvarðs enskukennara sem stóð fyrir neðan. Direct hit! Fimmhundruðþúsundmilljón stig! Minnti mig á "Hock-a-loogey" leikinn með Beavis & Butthead í aðalhlutverki. Allt leystist svo upp í rugl þegar Tumi bugtaði einhvern fávita. Allir voru komnir út og enginn á leiðinni aftur inn. Þá héldu allir á Prikið, mér til mikillar skelfingar, því eins og alþjóð er kunnugt um þá hvílir á mér bölvun. Þessi bölvun lýsir sér þannig að ég kemst ekki inn á Prikið. Punktur. Málið er dautt. Þetta kann að hljóma eins og argasta kjaftæði en ég hef AAAALLLDREI komist inn á Prikið. Nefnið mér annan skemmtistað, Vegamót, Sólon, Nasa, Nelly's, Hverfisbarinn, JÚ NEIM IT, ég hef einhvern tíman á lífsleiðinni komist inn á staðinn. En ekki Prikið, no way José. Ég hef ítrekað gert tilraun til að komast inn á þennan andskotans stað en það er bara ekki að gerast. Það sem er líka enn meira pirrandi er það að ég sýndi gæjanum í hurðinni skilríkin mín, bara alvöru skilríkin mín, og hvað segir hann? Segir hann "Nei því miður, þú ert ekki orðinn tvítugur"? Neeeei. Hann segir "Því miður, það er of langt í þig", sem þýðir það að ef ég ætti ekki afmæli svona FOKKING seint á árinu þá skipti ekki máli hvort ég væri orðinn tvítugur eða ekki! URG! Ég reyndi eitthvað að möndla hann með "Kooommon maður, ég er að dimmitera maður, það eru allir komnir inn.....gaur, ertu að tala um að þú ætlir að láta mig standa einan eins og hálfvita í þessum búningi hérna úti? Þú veist náttúrulega að þú ert að fara að hleypa mér inn." En allt kom fyrir ekki. Gaurinn púllaði bara gamla "Ég er búinn með góðverkið mitt í kvöld" á mig. Þannig að ég væflaðist bara eitthvað í bænum í smá stund, sosum í góðra manna hópi, það er ekki það, og beilaði svo heim. Skilst að ég hafi verið kominn heim hálftíma á undan hinum pælottunum, þannig að things aren't all that bad... Vaknaði svo áðan hressari en allt. Við erum ekki að tala um þynnku, sem er plús. Ætli það sé svo ekki bara Kill Bill í kvöld, hljómar eins og plan.
----------------------------------------------------------------------
Færslumúsíkin!
Louis Logic - The Ugly Truth (4:41)
Tom Waits - Ice Cream Man (3:05)
RJD2 - 2 More Dead (5:17)
Non Prophets - Xaul Zan's Heart (5:06)
Óðmenn - Er Mengun Hverfur (2:41)
Linton Kwesi Johnson - Reality Dub (2:47)
The Stooges - Gimme Danger (3:21)
Lou Reed - Lisa Says (5:35)
Megas - Paradísarfuglinn (3:46)