Haldiði að kallinn sé ekki bara mættur aftur....snúinn aftur úr för sinni til glötunar, endurnærður, endurholdgaður.
Þið megið búast við því að þessi færsla verði löng, svo löng að það er ekki einu sinni víst að ég nenni að klára hana. Hvar skal svo byrja....
----------------------------------------------------------
Kannski það sé best að byrja á blessaðri árshátíðinni sem var alveg hreint með eindæmum ánægjulegt þetta árið. Eins og kannski sumir vita þá var hún haldin á Selfossi, sem væri kannski ekki í frásögur færandi ef.....það væri ekki.....ekki í Reykjavík....nei...þetta er fáránlegt. ég ætla ekki að skrifa um þessa árshátíð eins og annar hver bloggari á Íslandi virðist hafa gert nú þegar. Ef þið viljið fræðast um þessa árshátíð þá getiði bara lesið lýsinguna hans
Atla Viðars og skoðað myndir
hérna,
hérna,
hérna og
hérna.
----------------------------------------------------------
Nú, ég hef séð bíómyndir, það er sosum hægt að minnast á það.
*Last Samurai fannst mér fín, ekkert stórkostleg, bara fín.
*21 Grams jaðraði aftur á móti við það vera stórkostleg, og er það helst Benicio Del Toro, Naomi Watts og Sean Penn að þakka, þau voru frábær.
*Big Fish var stórkostleg, enda ekki við öðru að búast af Tim Burton.
*Lost in Translation var alveg ótrúlega skemmtileg upplifun. Falleg mynd það.
*Gothika var ömurleg, þarf ekki að eyða fleiri orðum í hana.
*Along Came Polly var...tja....skítsæmileg, og það var bara Phillip Seymour Hoffman, Hank Azaria og Alec Baldwin að þakka. Og rassinum á Jennifer Aniston...
*American Splendor var virkilega góð. Gaman að sjá öðruvísi mynd endrum og eins.
----------------------------------------------------------
Við frumsýndum árshátíðarmynd MH 2004 á árshátíðinni. Henni var voðalega vel tekið, sem er gott. Þið getið nælt ykkur í eintak af henni nákvæmlega
hér (165MB innanlands niðurhal).
----------------------------------------------------------
Fréttir úr bloggheimum:
*
Krummi er byrjaður að blogga aftur af krafti. Bloggið hans er sniðugt að því leyti að þar er bæði að finna léttmeti fyrir sauðsvartan almúgann sem og heimspekilegar vangaveltur sem er ekki á færi hvers sem er að skilja.
*Mig langar að bjóða vesturbæingana
Eyjó,
Fúsa og
Smona velkomna á vefinn.
*Heimasíðan
Liebekosung er hérmeð orðin mín uppáhaldssíða á veraldarvefnum. Þeir sem ekki skoða þá ótrúlegu snilld reglulega eru að fara á mis við lífið sjálft.
*Ég bætti líka við linkum á
Eddu Þöll og
Kára Finnsson, einfaldlega vegna þess að mér fannst þau eiga það skilið.
----------------------------------------------------------
Nýverið fékk ég sendan frá
Amazon.com böggul sem ég sé svo sannarlega ekki eftir því að hafa pantað. Þessi böggull innihélt
The Work of Director's Spike Jonze, Michael Gondry & Chris Cunningham. Ég ætla ekki að fara nánar út í það hvað þessir diskar innihalda, þið getið lesið meira um það með því að smella á linkinn hérna rétt fyrir ofan.
Þegar ég var kominn með gripinn í hendurnar taldi ég mig mjög merkilegan mann.
Ég átti þennan frábæra pakka sem ég vissi a ófáir myndu öfunda mig af.
ÉG! BARA ÉG!. Þessi sturlun entist því miður (sem betur fer?) ekki lengi, því ég fékk fljótt að vita að ég var alls ekki einn um að eiga þetta safn. Þeir Atlarnir,
Viðar og
Bollason sem og ofurindígellan hún
Silla reyndust líka hafa fest kaup á þessari snilld fyrir einhverju síðan, svo sérstaða mín, sem ég hafði séð í hyllingum, varð snögglega að engu.
----------------------------------------------------------
Ýmiskonar listar virðast vera vinsælir um þessar mundir. Ég get nú varla verið þekktur fyrir listaleysi, svo hér kemur minn listi yfir mínar 7 uppáhaldskvikmyndir. Rökstuðningur fylgir ekki, enda er hann óþarfur.
1. Pulp Fiction
2. The Nightmare Before Christmas
3. Groundhog Day
4. Donnie Darko
5. Twelve Monkeys
6. Seven
7. Fight Club
Já, mikið rétt, þessar myndir eru allar innan við 11 ára gamlar, en mér er alveg sama. Ég hef séð alveg heilan helling af góðum gömlum myndum, jafnvel einhverjar sem mér finnast kvikmyndafræðilega séð
betri en einhverjar þeirra sjö sem ég er með á þessum lista. En þetta er líka listi yfir mínar
uppáhaldsmyndir, ekki bestu myndir sem ég hef séð. Svo þeir sem hafa eitthvað við þennan lista að athuga mega vinsamlegast éta saur.
----------------------------------------------------------
Það hefur verið mikið um vökunætur (eins og þessa) hjá mér undanfarið, og er þar um að kenna hálftómlegri stundatöflu þar sem fyrsti tími er yfirleitt ekki fyrr en frekar seint á daginn. Ég er skráður í tvo áfanga (fyrir utan líkamsrækt og lífsleikni) í töflu, og svo tvo forritunaráfanga í fjarnámi. Ég held að þessir forritunaráfangar hafi í raun þjónað sínum tilgangi nú þegar, þ.e. að gera mér ljóst hversu ótrúlega leiðinlegt þetta fag er. Það gæti líka verið ástæða þess að ég er á mjög góðri leið með að skíta upp á bak í báðum áföngunum. Ég þarf einingarnar svo sem ekki til að útskrifast, en ég ætla nú samt að gera mitt besta til að losna við falleinkunnirnar af stúdentsskírteininu. Við sjáum svo til hvernig það gengur.
----------------------------------------------------------
Ég setti inn glænýtt Haloscan kommentakerfi þar sem það gamla virðist hafa gefið upp öndina. Ég vona að fólk eigi eftir að nýta sér það eins og að væri þess eigið kynlífsleikfang....
----------------------------------------------------------
Frá og með núna hefur nýr liður bæst við þetta tómlega blogg mitt, en sá liður er
Færslumúsíkin!. Þannig er að ég á rétt tæplega 5700 laga mp3 playlista sem ég hef nánast stöðugt í gangi á meðan ég sit við tölvuna. Einnig er ég með skóflun (shuffle) á, sem þýðir það í meginatriðum að valið á lögum er algjörlega handahófskennt.
Færslumúsíkin! er s.s. listi yfir þau lög sem voru spiluð af þessum playlista á meðan á skrifum færslunnar stóð. Á eftir nafni lags mun ég svo rita lengd þess innan sviga, þannig hefur lesandi góða hugmynd um það hversu langan tíma tók að rita færsluna. Hefst þá partýið:
Færslumúsíkin!
Queens of the Stone Age - No One Knows (4:38)
Delinquent Habits - Tres Delinquentes (4:20)
The Velvet Underground - Sister Ray (17:31)
Sage Francis - Black Sweatshirt (2:06)
GZA - Auto Bio (3:54)
El-P - Deep Space 9 MM (3:47)
David Bowie - What's Really Happening (4:10)
Pharoah Monch - Lyrical Fluctuation 2000 (3:48)
RJD2 - Cut Out To Fl (3:42)
Aphex Twin - Pikachu (3:42)