þriðjudagur, desember 30, 2003

Jæja, it's been a long time.....

Jólin búin (eða það sem mestu máli skiptir a.m.k.) og ekkert nema slæmt um það að segja. Jólin eiga að vera endalaus. En ég fékk alveg gott sjitt í jólagjöf. Skrifborðsstóll frá mömmu og pabba, mig vantaði svoleiðis. Það er frekar erfitt að sitja á stól sem vantar tvær lappir á. Lost in La Mancha á DVD og Speed special edition á DVD, það er frekar mikið vel gert, enda er Lost in La Mancha með Terry Gilliam og Johnny Depp....can't fail. Og Speed er geheðveik, ein besta hreinrætkaða spennumynd 10. áratugarins, ásamt Face/Off, Con Air og Die Hard 3. Ég fékk líka öfluga peysu, það er mjög gott mál. Bókin American Gods eftir Neil Gaiman er auðvitað eitthvað sem ég varð að eignast, ekki byrjaður á henni enn samt, en það kemur.... Svo fékk ég líka fullt af svona whatever gjöfum, rúmföt, sokkar, nammi og eitthvað, það verða alltaf að vera nokkrar svoleiðis með. Já, Illgresið með Skyttunum leyndist líka í einum pakkanum, ég var mjög ánægður með það. Þar erum við að tala um alveg frábæran disk. Svo má ekki gleyma bókinni Drepið okkur eftir Hugleik Dagsson, áritaða og allt (mamma mín vinnur með honum sko...). Nú ég báðar bækurnar hans, og það verður að segjast að þessar bækur séu einhver almesta sturlun sem ég hef komist í tæri við. En skemmtileg sturlun þrátt fyrir það. "Sjáðu! Ég get gubbað blóði og talað á sama tíma!" Alveg frábært...

Fór á Return of the King á Föstudaginn....vá..... Krumma tekst best að lýsa stemningunni (er stemning með einu eða tveimur emmum?). Þið getið séð hvað mér fannst um hinar ýmsustu sögubreytingar í svörum mínum við þessari grein. Annars er voða lítið að segja um þessa mynd annað en bara vá...og shit.....og fleiri eins atkvæðis upphrópunarorð.

Ég fór að vinna í dag uppá Rás 2 með Stebba, Valla og systur hans Stebba við að taka við atkvæðum í kosningunni um mann ársins. Þetta er án efa þægilegasta vinna sem ég hef verið í. Í allan dag tók ég við færri en 60 atkvæðum, sem mundi þýða eitthvað í kringum 6 atkvæði á hverjum klukkutíma... Það var sem sé mikið reynt að horfa á sjónvarpið, við lítinn árangur, aðallega sökum lélegrar dagskrár á ÖLLUM sjónvarpsstöðvum í heiminum. Þangað verðu farið aftur á morgun, spurning hvort það verði meira að gera þá...

Over and out....

sunnudagur, desember 21, 2003

Mogginn í dag var frekar flippaður á því. Þegar ég var að fletta fram hjá minningargreinunum þá þóttist ég sjá útundan mér kunnuglegt andlit. "Er Neo loksins búinn að drepa Agent Smith" hugsaði ég. En þetta var víst ekki Agent Smith, né Elrond, né Hugo Weaving, heldur bara einhver Þorvaldur Kolbeins. Svo þegar ég fletti áfram, eða afturábak, því ég les Moggan alltaf öfugt, þá varð mér litið á mynd af Halldóri Ásgrímssyni, líklega á sínum yngri árum, hugsaði ég, hann var svo spengilegur á þessari mynd. Hann sat með kúrekahatt og garðkönnu í fanginu undir heilum hellingi af svínsskrokkum. Ég varð svo frekar spældur þegar ég leit á textann undir myndinni og komst að því að þetta var alls ekkert Halldór Ásgrímsson heldur bara einhver bóndi......

mánudagur, desember 15, 2003

Ég held að ég sé búinn að ákveða það að bestu lög allra tíma séu Ziggy Stardust og Space Oddity með Deivid Báí, Layla með Eric Clapton og Moondance með Van Morrison. Þetta eru lög sem er alveg hægt að hlusta á oftar en getur talist heilbrigt án þess að fara að finna fyrir fyrirlitningu. Aukinheldur er ég búinn að gera það upp við mig hvaða bítlalag er besta bítlalagið. Gallharðir bítlafans með Paul hár og Ringo plakat á klósettinu og tilheyrandi gætu verið frekar ósáttir með það að ég skuli velja svona óbítlalegt lag, en besta bítlalagið að mínu mati er lagið I want you (She's so heavy) af plötunni frábæru Abbey Road. Being for the Benefit of Mr. Kite er ekki langt á eftir í öðru.

Jæææææja, nú er klukkan orðin kortér yfir 7 og ég held ég hafi heyrt umgang frammi. Ég held að það sé alveg að fara að koma tími til að halla sér.
Haha, klukkan svona þrjú í dag (sunnudag) kom ég handónýtur heim úr stórfélagsferð. Ég var svo handónýtur að þegar við mættum uppí MH þá ákvað aðeins að leggjast niður uppá sviði í NKJ. Ég rankaði svo aftur við mér klukkan tíu mínútur yfir sex, allir farnir og búið að læsa skólanum norðukjallaramegin. Sem betur fer komst ég samt út um aðalinnganginn....

föstudagur, desember 12, 2003

Jæja, þá er maður bara kominn í jólafrí. Gekk bara frekar ágætlega í efnafræði og eðlisfræðiprófunum mínum. Ég og Krummi vorum svo að vinna í þessari blessuðu Monty Python heimasíðu til klukkan hálf níu í morgun, og afraksturinn var eftir því (þ.e. góður, vegna þess mikla tíma sem fór í að gera síðuna). Ég vaknaði klukkan tvö áðan, tíu mínútum áður en ég átti að mæta í skólann. Frekar mikil heppni að systir mín hafi verið að koma heim akkúrat þá. Ég dreif mig að skrifa þessa síðu á disk og flýtti mér svo fótgangandi uppí skóla. Það gekk furðuvel að flýta sér þrátt fyrir ólýsanlega mikla hálku.

Fór á Cabin Fever í gær, mjög mjög gott mál. Ég er ekki frá því að Cabin Fever sé besta unglingahrollvekja sem ég hef séð. Hún var ógeðsleg, fyndin, þrýstin (haha, gott lýsingarorð), og bara umfram allt frábær skemmtun.

Ég þarf að komast í ríkið...sendi bara Krumma...

þriðjudagur, desember 09, 2003

Vá, ég hef aldrei verið svona rólegur gagnvart prófum síðan ég byrjaði í MH. Eða kannski er ekki rétt að kalla þetta rólyndi, kannski frekar ábyrgðarleysi. Í gær (sunnudag) hafði ég hugsað mér að vakna einhvern tíman í kringum hádegi og læra efnafræði. Fólki finnst það kannski ekkert rosalega snemmt, en ég hugsaði með mér að ef mér tækist að vakna svona í kringum ellefu þá væri ég hetja og gæti lært allt sem mig lysti. Það gekk ekki eftir. Ég rankaði við mér klukkan fjögur og skreiddist frammúr, lærði eitthvað, og komst að þeirri niðurstöðu að fyrri helmingurinn af efninu sem ég átti að læra fyrir efnafræðiprófið væri mjög léttur. Nú, fyrst þetta var svona skítlétt, af hverju ekki bara að sleppa því að fara yfir það? Svo ég svona nokkurnveginn sleppti fyrri helmingi efnisins. Jæja, þá var ég búinn með helming efnisins, og hafði heilan dag í viðbót til að læra seinni helminginn, þannig að nóg var komið af lærdómi þann daginn. Svo ég gerði ekki neitt þangað til eftir kvöldmat þegar ég skellti mér ásamt Valla á rómantísku gamanmyndina Love Actually sem er bara alveg hreint bráðskemmtileg.

Í dag tókst mér svo að vakna um hádegi, þó að planið hafi verið að vakna klukkan átta þegar fólk var á leið í skóla og vinnu. Ég sat og lærði nánast í allan dag....á meðan ég gerði ýmislegt annað. Það virkar ekkert alltof vel að læra og gera eitthvað annað á meðan. Ég fattaði svo frekar seint að ég á ekki síðasta kaflann sem á að lesa fyrir próf, en sá kafli er í annarri bók, en mér var eiginlega alveg slétt sama. "Ég mæti bara aðeins fyrr uppí skóla og fæ að renna yfir kaflann hjá einhverjum áður en prófið byrjar" hugsaði ég. Ég hugsa að ég sé samtals búinn að eyða svona fjórum tímum í að læra fyrir þetta efnafræðipróf. Þetta er búið að vera mjög svipað fyrir hin prófin mín. Það eina sem kemst að í höfðinu á mér er hvað það verður óviðjafnanlega frábært að klára eðlisfræðiprófið á fimmtudaginn. Á fimmtudagskvöldið ætla ég á forsýningu á Cabin Fever, á föstudaginn hef ég hugsað mér að stunda knattspyrnu og á laugardaginn mun ég bregða mér úr bænum og fara á sveitt fyllerí ásamt öðrum úr stórfélagi NFMH. Það er sem sé margt að hlakka til en samt sem áður tvennt að kvíða fyrir. En ég nenni ekki að spá í því leiðinlega, það gerir mig bara þunglyndan.

laugardagur, desember 06, 2003

Jæja, ég var að bæta við linki á eina alkostulegustu síðu sem ég hef nokkurn tíman barið augum. Það er Tyrfingur Tyrfingsson busamyndarstjarna og félagar hans, þ.á.m. hann Sigurður Unnar, sem halda þessari síðu gangandi. Ég held ég geti alveg fullyrt það að þetta "blogg" setur nýjan standard fyrir flippara um heim allan. This can't be missed.

Skoðiði síðuna hérna: http://www.liebekosung.tk

föstudagur, desember 05, 2003

Jæja, búinn að laga aðeins til í linkunum mínum.

Fjarlægðir linkar: Andri Egils, Elliði, Hjölli og Oddur. Þessir menn hafa ekkert bloggað í lengri tíma og engin ástæða til að hafa link á þá lengur.

Nýjir linkar: Dóri DNA, Kalli knattspyrnukappi, Kiddi Everest og Otee.

Ef einhver telur sig eiga heima á linkalistanum mínum en er ekki þar, þá er um að gera að láta mig vita í blogout commentakerfinu mínu.

ATTENTION

Krummi, ef þú bloggar ekki í bráð þá missirðu linkinn þinn!
Amma gefur mér alltaf svona súkkulaðijóladagatal, hefur gert það síðan ég var pínulítill. Með þessum jóladagatölum fylgir yfirleitt svona lítil barnatannkremstúpa, í þetta skiptið með mynd af Bugs Bunny framaná. Yfirleitt spái ég ekkert í því, en núna fyrr í dag ákvað ég að smakka það. Það var bara nokkuð gott, og áður en ég vissi af var ég búinn að möntsja næstum alla túpuna á meðan ég var í tölvunni. Svo kom mamma til mín og spurði mig hvar tannkremið væri af því að hún ætlaði að gefa systrum mínum það. Ég sagði henni að ég væri búinn að éta það allt. Þá spurði hún hvort það væri ekki allt í lagi með mig og sagði mér að það væri hættulegt að borða mikið tannkrem."Ha! Hættulegt?" hugsaði ég, og fór á netið til að afla mér upplýsinga um þessa ímynduðu hættu mömmu minnar, ég ætlaði sko aldeilis að sýna henni að hún hefði rangt fyrir sér. En viti menn, það er hættulegt að borða mikið tannkrem. Shit....
Jæja, the return of me.

Ég er búinn að taka próf bæði í Stærðfræði 503 og 533. Spái sjöu í báðum. Nú á ég bara eftir að taka eðlisfræði 203 og efnafræði 203 próf. Jú, og klára þessa blessuðu Monty Python heimasíðu með Krumma.

Ég var að horfa á Ferris Bueller's Day Out með Valla áðan. Djöfull er hún fyndin. Ég verð víst að játa það á mig að ég hafði aldrei séð þessa mjög svo rómuðu mynd áður. Frekar öflug mynd.

Ég vil vekja athygli á endurkomu Sigga Arents í bloggheiminn. Allir að lesa það.

Það hefur verið mikið um ýmiskonar glæpi og vesen undanfarið. Sjoppur rændar hægri vinstri, boxarar hálfdrepnir og boxmógúlar böstaðir með kók í rassgatinu. Við erum að verða eins og Bush og félagar í vestri.

Horfði á Royal Tenenbaums í annað skiptið í gær. Hún var betri í seinna skiptið. Gaman að henni.

Hey, allir að bæta mér á MSN contact listann sinn. stigurh@hotmail.com

Af hverju er ég að skrifa í svona stikkorða stíl?

fimmtudagur, desember 04, 2003

Djöfull væri ég til í að eiga nineteenthousand pounds in my pyjamas og fortythousand french francs in my fridge.... eða for that matter, djöfull langar mig í pyjamas.....og fridge....