Jæja, þó svo að ég hafi ekki verið fyllilega sáttur með þáttöku í hinum bráðskemmtilega leik "Commentum í commentadraslið hans Stígs" þá hef ég ákveðið að láta gott heita af þeim leik í bili og ætla að hefjast handa við að rekja það sem á daga mína hefur drifið síðan á miðvikudaginn síðasta.
Ég tók stærðfræðipróf á miðvikudaginn, línuleg algebra. Það væri synd að segja að mér hafi gengið vel, enda ekki enn búinn að kaupa kennslubókina í téðu fagi.
Ég skellti mér á Matrix Revolutions á miðvikudaginn, sjálfan frumsýningardaginn. Skoðið svar mitt við þessari grein hér til að sjá hvað mér fannst. Eða fannst ekki.
Á fimmtudeginum, þeim annars ágæta degi, tók ég svo annað stærðfræðipróf, í þetta skipti í stærðfræði 503. Niðurstöðuna úr því fékk ég í hendurnar í dag, en hún var slétt fimma, sem er ekki svo langt frá því sem ég hafði sjálfur áætlað að ég fengi. Í rauninni er það nákvæmlega það sem ég hafði áætlað. Temmilega sáttur við það.
Ég og Krummi fluttum hreint út sagt magnaðan fyrirlestur um Twelve Monkeys í ensku á föstudaginn. Ég vil ekki virðast sjálfumglaður, en þessi fyrirlestur var það besta sem átt hefur séð stað á þessari jörð síðan......tja.....síðan Nelson Mandela var látinn laus úr fangelsi!
Eftir skóla á föstudaginn fór ég og lét fagmann fjarlægja af mér stóran hluta þess hárs sem ég áður hafði. Eftirsjá eða léttir? Ekki búinn að gera það upp við mig ennþá. Eftir klipperíið þrumaði ég mér rakleiðis niður í Þrumuna á Laugaveginum og festi kaup á tveimur geezlediscs. Annar þeirra er diskurinn Týndi Hlekkurinn með Forgotten Lores. Frábær diskur þar á ferð, kudos Addi, Baddi, Benni, Birkir og Diddi. Hinn var diskurinn Music, Magic, Myth með Last Emperor. Annar frábær diskur þar á ferð.
Fór svo í fótbolta á föstudagskvöldið að venju. Eftir það skundaði ég heim til Ásu, en stoppaði stutt við sökum leiðinda. Endaði svo, eins og svo oft áður, á Poolstofunni í Lágmúla ásamt Valla, Stebba og Oddi.
Á laugardaginn man ég varla hvað ég gerði. Ég vaknaði einhvern tíman seint um eftirmiðdaginn og gerði ekkert þar sem eftir var dagsins. Jú, ég horfði á Amores Perros í fyrsta skipti í sjónvarpinu um kvöldið. Vægast sagt mögnuð mynd. Skrýtið að hún hafi ekki unnið óskarinn sem besta erlenda myndin, í staðinn fyrir Crouching Tiger, Hidden Dragon. Ég hefði nefnilega haldið að það væri eitthvað athugavert við það að mynd sé tilnefnd sem "besta erlenda myndin" jafnframt því að vera tilnefnd sem "besta myndin". Furðulegt, en ég er nú ekki Óskar. Né Steve Martin. Né Weinstein bræðurnir.
Á sunnudaginn varð ég árinu eldri. Já, ég er orðinn 19 ára. Loksins! Ég er búinn að vera að bíða eftir þessum degi svo lengi! Eða ekki..... 19 ára afmæli er ómerkilegt. Maður öðlast akkúrat engin réttindi við 19 ára aldur. Það þyrfti að bæta við einhverjum nýjum réttindum sem maður fengi þegar maður yrði 19 ára. Réttindi til að keyra Volvo með hestakerru eða eitthvað. Það væri gaman.
Ég fékk Sennheiser HD 570 heyrnatól í afmælisgjöf, það er geðveikt. Þessi heyrnatól eru sjúk, ég er búinn að vera með þau á mér síðan ég fékk þau (fyrir utan þau örfáu skipti sem ég hef farið út úr húsi, skólinn og svona) og það er ekki enn farið að vera neitt óþægilegt. Venjulega verða heyrnatól óþægileg eftir að þú ert búinn að vera með þau í svona 2 tíma. Það er flauel á þessum, ekki leður, sem er gott. Ég er sáttur.
Amma mín gaf mér 9000 kall. Amma er klikk. In a good way samt.
Á sunnudagskvöld fór ég svo enn einu sinni á Poolstofuna í Lágmúla (þeir ættu að fara að senda mér launaseðil...) í þetta sinn með Valla, Guðna og Oddi. Við tókum nokkra 9-ball leiki og fórum svo til Odds og tókum eitt Risk. Ég man ekki hver vann, en ég man það samt að ég kom mjög seint heim.
Á mánudaginn (í dag? í gær?) fór ég svo í skólann eins og venja er að gera á mánudögum. Mætti í alla mína tíma og stóð mig bara hreint ágætlega í öllu sem ég tók mér fyrir hendur þar í dag.
Ég kom svo heim og organæsaði emmpíþrí safnið mitt. Er það asnalegt?
Í kvöld fór ég svo aftur og tók eitt Risk við Valla, Guðna, Odd og Hauk. Ég man ekki hver vann, en ég man það samt að ég var að koma heim ekki alls fyrir löngu.
Ég og Atli Viðar ætlum að stofna til körfuboltamyndabíttdags í skólanum á miðvikudaginn. Allir eiga sem sagt að koma með gömlu körfuboltamyndirnar sínar og bíttið verður í algleymingi!
Ég er að spá í að fara að skipta um templeit, þetta er með allt of stóran font og ekki nógu breitt textfíld. Færslurnar mínar eru of langar til að þetta templeit beri þær. Eða hvað finnst ykkur?
Jæja, best að fara að læra eitthvað....
Og endilega kommentiði!!!! Til þess er maður að þessu! Segið skoðun ykkar á því sem ég hef skrifað eða bara eitthvað! Þið megið kommenta eins mikið og þið viljið! Því meira því betra. Kommentátak Stígs.