Ég bætti við einhverjum helvítis hellingi af random linkum....
þriðjudagur, september 30, 2003
Það hefur reynst mér erfitt að höndla tilveruna undanfarna tvo daga, eftir að ég uppgötvaði að ég, ásamt nokkrum að því er virðist örfáum útvöldum aðilum (Atli er einn af þessum örfáu, takk Atli), er sá eini sem hefur einhvern snefil af smekk þegar kemur að matarvenjum. Það kom sem sé í ljós í gær að ekki allir, og ekki einu sinni flestir, hafa það fyrir sjálfsagða reglu að þegar pulsur eru í matinn á heimili þeirra þá sé drukkin með því íslensk mjólk! Þetta er auðvitað hin mesta hneisa og satt best að segja á ég erfitt með að trúa því að meginþorri ungmenna á Íslandi í dag séu að fara á mis við þann munað sem pulsur og mjólk hljóta að teljast. Til að fá einhern botn í þetta mál óska ég hér með eftir sját átum frá öllum þeim sem rata inn á þessa síðu, þar sem þeir greina frá því hvort þeir hafi það fyrir venju að drekka mjólk með pulsum.
mánudagur, september 29, 2003
Svo virðist sem honum Sindra sé eitthvað uppsigað við mig og Atla sökum þess að við höfum meiri hugmynd en hann um það hvað er í gangi í Efnafræði 203. Ef það er einhver honum einhver huggun þá viðurkenni ég það hér með að ég er ekkert alveg að skilja þetta heldur. Ég var vel með á nótunum fyrir svona viku en í síðustu tveimur eða þremur kennslustundum hefur eitthvað rotnað í hausnum á mér og þetta er farið að verða frekar mikið snúið. Ég held að ég geti fullyrt að það séu a.m.k. þrjár manneskjur í þessum áfanga með mér sem skilja efnið betur en ég. Það eru umræddur Atli Bollason, Magnús busamyndastjarna og Daði ljós. Þó að ég standi alls ekki illa að vígi í þessu fagi þá er ég samt sem áður ekki allskostar sáttur við eigin frammistöðu, sérstaklega ef litið er til verkefnaskila.
mánudagur, september 22, 2003
Vá. Ég veit ekki hvort ég á að hlæja eða gráta að þessu
fimmtudagur, september 18, 2003
Aoccdrnig to rscheearch at an Elingsh uinervtisy, it deosn't mttaer in waht oredr the ltteers in a wrod are, olny taht the frist and lsat ltteres are at the rghit pcleas. The rset can be a toatl mses and you can sitll raed it wouthit a porbelm. Tihs is bcuseae we do not raed ervey lteter by ilstef, but the wrod as a wlohe
Magnað, finnst ykkur ekki? Mér finnst þetta a.m.k nokkuð merkilegt...
Magnað, finnst ykkur ekki? Mér finnst þetta a.m.k nokkuð merkilegt...
miðvikudagur, september 17, 2003
Mig grunar að ég eigi MH-met í að hafa verið með marga kennara. Eftir ítarlega rannsókn hef ég komist að þeirri niðurstöðu að ég hef haft 35 kennara í 42 áföngum (þá tel ég ekki með íþróttaáfanga eða lífsleikniáfanga, einfaldlega af því að ég man ekki hverjir íþróttakennararnir mínir síðustu 3 ár voru). Ég hef til dæmis tekið sjö enskuáfanga hjá jafnmörgum kennurum, fimm íslenskuáfanga, aldrei með sama kennarann og fjóra þýskuáfanga hjá fjórum kennurum. Það eru aðeins 6 kennarar sem ég hef haft oftar en einu sinni, og bara einn af þeim hef ég haft þrisvar. Þessir sex kennarar eru Auður Ingimarsdóttir, Einar Júlíusson, Einar Óskarsson, Gunnar Freyr Stefánsson, Pálmi Magnússon og Ragna Briem, en hún hefur kennt mér í þremur áföngum. Þetta finnst mér magnaður árangur og nú langar mig að vita hvort einhver geti slegið mér við í þessum efnum.
mánudagur, september 15, 2003
Guð minn freaking almáttugur. Ég var að koma af Once upon a time in Mexico. Mig langar að eignast börn með Johnny Depp. Ég er ekki að grínast. Ef Johnny Depp mundi spurja mig hvort ég vildi giftast honum og eignast með honum börn þá mundi ég hiklaust segja já. Það er sem sé skemmst frá því að segja að Johnny Depp á þessa mynd. Og það gerist ekki oft að Willem Dafoe sé outperformeraður í kvikmynd, en það er það sem gerist í þessari mynd. Það getur einfaldlega ekki feilað að láta Johnny Depp leika CIA agent í stuttermabol sem stendur á "I'm with stupid" og ör sem bendir niður á við. Hann var svo svalur að mig verkjaði í augun (hahaha....... sjáiði myndina, þá fattiði brandarann). Annars var myndin óhuggulega brútal. Það var snilld. Ég mæli með að fólk fari og sjái þessa mynd, aðallega út af Johnny Depp, en líka útaf því hvað hún er brútal. Shii...
fimmtudagur, september 11, 2003
Jæææææja...... klukkan er núna hálf fjögur og ég var að koma heim frá Krumma. Busamyndin er tilbúin. Allir að kíkja á hana á morgun (í dag???). Reyndar efast ég stórlega um að margir eigi eftir að lesa þetta blogg mitt þangað til myndin verður sýnd þannig að þessi tilkynning mín var væntanlega gjörsamlega tilgangslaus. En fokk itt.
þriðjudagur, september 09, 2003
Ég var hjá Krumma til klukkan eitt í kvöld. Nýja fína íbúðin hans Krumma var svo troðfull af hreinni geðveilu í kvöld að annað eins mun að öllum líkindum aldrei hafa fyrirfundist, neins staðar. Ég, Hjölli, Kiddi, Krummi og Egill vorum þarna staddir og þó svo að kvöldinu hafi verið eytt að mestu í gjörninga eins og að stinga handsmíðuða trésverðinu hans Krumma í óæðri endann á Kristni Everest, þá komum við alveg furðulega miklu í verk. Good Shit.
Ég borðaði tvöfaldan ostborgara með tvöföldu beikoni og tvöföldu eggi á American Style í kvöldmat. Good shit.
Ég er eiginlega veikur. Ég er með fáránlega hálsbólgu, bullandi kvef með stanslausu nefrennsli og óbugandi nefstíflu til skiptis, auk þess sem ég er bara almennt slappur. Gæti haft eitthvað með svefnleysi að gera. Slæmt shit.
Ég er búinn að vera ÖMURLEGUR að blogga undanfarið. Slæmt shit.
Ég er alvarlega að velta því fyrir mér að fara að skríða í bælið hvað á hverju þar sem klukkan fer brátt að slá þrjú, og ég á enn eftir að læra eitthvað leiðinlegt. Shit.
Busamyndin verður sýnd á fimmtudaginn. Allir að mæta. Þessi mynd er sturluð. Enginn mun ganga heill á geði út af þessari sýningu. Good shit.
Bragi hefur verið iðinn við að yrkja klámvísur upp á síðkastið, hverja annarri betri. Hann vitnaði líka í comment sem ég skildi eftir á síðunni hans Atla (sem er annað dæmi um bloggara sem er búinn að vera ÖMURLEGUR upp á síðkastið). Good shit.
Ég braut Canon PowerShot 70 stafrænu myndavélina hans pabba í skólanum í dag. Hún tekur reyndar samt ennþá myndir og virkar að því leytinu til alveg fullkomlega, en samt. Slæmt shit.
Ég fékk sjö punkta í skólanum í dag og ég held að ég hafi skrópað í efnafræðitilraun. Slæmt shit.
Ég ætla að detta allrosalega í það á busaballinu á fimmtudaginn. Good shit.
Ég ætla að reyna að hækka bloggtíðni mína. Good shit.