laugardagur, júlí 26, 2003

Jæja, þá er ég bara alveg að fara að leggja í hann út á völl. Tek flug frá Leifsstöð til Heathrow klukkan 16:00. Bíð þar í nótt og tek svo flug til Prag í fyrramálið. Þar hef ég rétt svo tíma til að koma mér upp á hótel og skila öllu draslinu mínu áður en ég þarf að koma mér af stað niður á tónleikana sem ég er að fara á. Þetta verða merkistónleikar. Þetta eru nefnilega 60 ára afmælistónleikar Mick Jagger. 130.000 manna Rolling Stones tónleikar....

föstudagur, júlí 25, 2003

Allt eðlilegt fólk sem býr á heimili þar sem greitt er fyrir áskrift að Morgunblaðinu rak sennilega upp stór augu þegar þeir litu þeim á baksíðu blaðsins í dag. Þarna var á ferðinni ein allra ósmekklegasta mynd sem undirritaður hefur séð birta í íslenskum fjölmiðli, og þó víðar væri leitað. Það er alveg greinilegt að það er enginn starfsmaður á Morgunblaðinu með heilbrigt siðferði. Myndina geta áhugasamir mogglausir aðilar barið augum hér.
Ég fór á Gaukinn í gær að sjá besta Pink Floyd coverband í heimi að mati tónlistartímaritsins Rolling Stone. Þetta var hljómsveitin Dúndurfréttir, en í henni má meðal annarra finna Matta úr Pöpum og Pétur Jesús. Þeir tóku fullt af Led Zeppelin og Pink Floyd lögum, einhver Deep Purple lög og eitt Uriah Heep lag. Þessir tónleikar voru vægast sagt mögnuð upplifun. Gítarleikarinn (sem ég veit ekkert hvað heitir) er alveg sjúklega góður!
Hér kemur listi af lögum dagsins fyrir fullt fullt af dögum aftur tímann og fram í hann líka:

Aesop Rock - Daylight
Afu Ra feat. M.O.P - Warfare
Akinyele - Put it in your mouth
Alice in chains - Man in the box
Aphex twin - Windowlicker
Atmosphere - If I was Santa Clause
Big L - Put it on
Bob Marley & Guru - Johnny Was
Bucwead - No dummy
Cat Stevens - Wild World
De la soul & Mos Def - Big beat brother
Dire straits - Sultans of swing
Evidence - Search 4 Bobby Fisher
Flowers - Glugginn
Focus - Hocus pocus
Gang Starr - Rite where you stand
Gang Starr - Who got gunz
GZA - Living in the world today
Last emperor - Away from the sun
Last emperor - Charlie
Last emperor - One life
Lou Reed & All star team - Perfect day
Mos Def - Habitat
Nas - Dance
Nas - Doo Rags
Necro - Gory days
Non Phixion - Black helicopters
OC & Ras Kass - Action guaranteed
Quarashi & Opee - Mess it up
Pink Floyd - Comfortably numb
Pink Floyd - Money
Pink Floyd - Shine on you crazy diamond
Queen - Innuendo
Royce da 5'9" & Eminem - Renegade (original)
Sage Francis - Inherited scars
Slug - Nothin' but sunshine
Slug - The river
Soundgarden - Black hole sun
Talking heads - Psycho killer
Uriah heep - July morning
Weezer - Say it ain't so
White stripes - Fell in love with a girl
White stripes - Seven nation army
Whitesnake - Here I go again
Zack De La Rocha, KRS-One & Last emperor - CIA (Criminals in action)

Shit..... ég er að fara til Prag á morgun og fattaði núna rétt áðan að passinn minn er útrunninn.......... eftir að útlendingaeftirlitið, löggustöðin og allt klabbið lokaði. Djöfull panikkaði ég. En þetta reddaðist. Ég get fengið bráðabirgðapassa uppi á velli fyrir 8000 kall. Bögg samt. En, peningar eru ekki allt, aðalmálið er að skemmta sér vel í Prag.

föstudagur, júlí 18, 2003

Kristinn hafði aldrei heyrt um mann að nafni Bob Dylan áður en ég minntist á hann áðan. Hann hélt að Knockin' on heaven's door væri eftir Axl Rose og félaga í Guns n' roses. Hann vissi ekkert hver David Bowie var og hélt að hann hefði einhvern tímann heyrt um Jimi Hendrix, en var samt ekki alveg viss....

mánudagur, júlí 14, 2003

Þetta er hugsanlega eitt það fyndnasta sem ég hef lesið. Áfram Ingálvur! Hann er góður bloggari, frændi Egils og vinnur á sama stað og pabbi minn.
Jæja, hér koma tvær nýjar sögur af Prins Ignorant, a.k.a Kristni.

--------------------------------------------------------

(Kristinn var að skoða gamlan mogga)
Hann: "Hvað er Kárahnjúkavirkjun?"
Ég: "Það er virkjun"
Hann: "Hvað er að gerast þar?"
Ég: "Hefurðu aldrei heyrt um Kárahnjúkavirkjun?"
Hann: "Nei, ekki fyrr en núna..."
--------------------------------------------------------

(Við vorum að spá í hvað það kostaði á ári að reykja einn pakka af sígarettum á dag. Kristinn var búinn að finna það út að það kostaði 15.000 kall á mánuði, eða 30 dögum eins og hann orðaði það.)

Ég: "Reiknaðu 15 sinnum 12"
Hann: "10 sinnum 15 er hvað?"
Ég: "150...."
Hann: "Og tveir sinnum 15 er hvað?"
Ég: "30...."
Hann: "Þannig að þetta er hvað? 230 þúsund á ári?"

laugardagur, júlí 12, 2003

Mamma og pabbi og systur mínar komu heim í dag. Í tilefni þess, og að systir mín á 10 ára afmæli í dag þá ákvað ég að gera eitthvað sem ég hef aldrei gerst svo frægur að gera áður. Ég bakaði köku. Þessa líka yndislegu djöflatertu. Djöfull er ég stoltur. Ég impróvæsaði mig meira að segja út úr klúðri með kremið.

fimmtudagur, júlí 10, 2003

Hér kemur meiri Kristinfræði:

Hann (Að skoða teikningu af lóðinni sem við erum að vinna í): "Hvað er grágrýti?"
Ég: "Það er steintegund"
Hann: "Steintegund? Ég vissi ekki að það væru til mismunandi tegundir af steinum...." (Hann hafði heldur aldrei heyrt um blágrýti, granít eða apalhraun.)
---------------------------------------------------------

Hann: "Í hvaða skóla ertu?"
Ég: "Menntaskólanum við Hamrahlíð."
Hann: "Hamrahlíð..... hvað er það.....HM? FM?
Ég: "Nei.......MH....."
Hann: "Já, eða það..."



Ég leyfi mér að áætla að hann hyggi ekki á frekara nám.....

miðvikudagur, júlí 09, 2003

Ég var að muna eftir öðrum gullmola frá herra Kristni. Þannig er að einn af starfsmönnum fyrirtækisins heitir Mímir og af einhverri ástæðu barst hann til tals þegar Kristinn var viðstaddur. Þá heyrðist í Kristni: "Mímir? Ég hélt að hann héti Nímir. Mímir, það er asnalegt nafn." Honum fannst Nímir greinilega mikið eðlilegra og flottara nafn. Þess ber að geta að Nímir er ekki alvöru nafn.
Ég er að vinna með heimskustu 16 ára manneskju sem til er í öllum heiminum. Ég get fullyrt það að enginn getur bent mér á heimskari mann. Hann heitir Kristinn og hann féll á öllum samræmdu prófunum nema ensku. What's a brother gonna do, hann er úr Breiðholtinu.... Hérna koma nokkur brot af þeirri snilld sem hann hefur látið út úr sér í samræðum við mig eða vinnufélaga mína.

---------------------------------------------------------
(Að lesa minningargreinar í mogganum)

"Af hverju eru svona margir sem deyja svona gamlir?"

og

"Af hverju deyja svona margir á sjúkrahúsi?"
---------------------------------------------------------

Hann: "Hvar eru mamma þín og pabbi?"
Ég: "Í Hornvík"
Hann: "Hvar er það? Í Króatíu eða eitthvað?"
---------------------------------------------------------

(Honum var sagt að grafa sirka meter frá rafmagnskapli)

"Hvað er einn metri sirka langur?"
---------------------------------------------------------

Hann: "Hvað eru margir millimetrar í centimetra? Eru þeir 100?"
Vinnufélagi minn: "Nei, er það nokkuð?"
Hann: "Nú, eru þeir þá þúsund?"
---------------------------------------------------------

Vinnufélagi minn: "Veistu hvar Landakotskirkja er?"
Hann: "Er það ekki einhvers staðar rétt hjá þar sem Rammstein tónleikarnir voru haldnir?" (Sum sé Laugardalurinn!)
Vinnufélagi minn: "Nei, hún er einhvers staðar á milli Hringbrautar og hafnarinnar." (Betra að hafa svæðið rúmt þegar maður er að spjalla við svona snilling)"
Hann: "Já, er það ekki rétt hjá Laugarásbíó?"
---------------------------------------------------------

Vinnufélagi minn: "Við þurfum að skreppa niður í Borgartún í kaffinu."
Hann: "Borgartún? Er það einhversstaðar rétt hjá Borgarnesi?"
---------------------------------------------------------

Við komust líka að því að orðið unaðslegt hafði hann aldrei á ævi sinni heyrt fyrr. Hann kannaðist ekkert við að hafa lært neitt um ferskeytlur í grunnskóla og sagðist aldrei hafa heyrt orðið fyrr, ætlaði aldrei að geta borið það fram. Hann neitaði því líka staðfastlega að hafa nokkurn tíma rekist á eitthvað í stærðfræðinni sem kallaðist pýþagórusarregla.

Ég get lofað því að ég mun uppfæra þennan lista með einhverjum skemmtilegum tilvitnunum um leið og ég man eftir fleirum.

þriðjudagur, júlí 08, 2003

Ég er að borða ís með piparmyntusúkkulaðiísingu. Það er gott....
Það er til tónlistarmaður sem ég undir öllum venjulegum kringumstæðum þoli ekki. Öll tónlist sem þessi maður hefur gert finnst mér vægast sagt hundleiðinleg og virkilega óþolandi, nema eitt lag. Og það er ekki nóg með það að mér finnist þetta eina lag bara aðeins áhlustunarlegra en annað efni sem hefur komið frá þessum manni, heldur er ég á því að þetta lag sé með betri lögum sem ég hef á ævi minni heyrt. Er þetta eðlilegt?

Þessi tónlistarmaður kallast Aesop Rock og er með mest pirrandi rödd í gjörvallri veröld vorri. Lagið sem ég geng svo langt að kalla eitt besta lag sem ég hef heyrt heitir Daylight og er hreint út sagt frábært. Ég á enn eftir að finna annað lag sem mér finnst komast nálægt því að vera ágætt eftir þennan mikils metna tónlistarmann og mér finnst þetta satt best að segja mjög undarlegt......

föstudagur, júlí 04, 2003

Fjölskyldan skildi mig eftir einan á þriðjudaginn var og koma ekki aftur heim fyrr en á laugardaginn eftir viku. Ég er búinn að koma mér upp aðstöðu inni í stofu, ég fór með tölvuna inn í stofu þannig að nú get ég verið í tölvunni og horft á sjónvarpið í einu. Ég tengdi tölvuna við sjónvarpið þannig að nú get ég horft á tölvuna í sjónvarpinu. Ég á reyndar eftir að tengja sjónvarpskortið í tölvunni minni þannig að ég get ekki horft á sjónvarpið í tölvunni. Það væri sniðugt að horfa á sjónvarpið í tölvunni í sjónvarpinu. Nú þarf ég ekkert að standa upp nema til að éta, sofa og hafa hægðir.