miðvikudagur, apríl 30, 2003

Vá ég er búinn að klúðra öllu maður. Ég er greinilega ekki kominn með þetta html kjaftæði á hreint. Ég vil biðja alla um að reyna bara að leiða þetta hjá sér. Mér tókst meira að segja að klúðra þessum pósti þarna niðri svo mikið að ég get ekki editað hann og lagað hann þannig. Edit linkurinn vísar bara á einhverja vitleysu.
Hvernig í fór ég að því að gera allt gamla draslið bold??????? Einhver sem kann að laga það má endilega sjáta át.
Andstætt við daginn í gær þá var skóladagurinn í dag einkar gáfulegur. Ég fór í efnafræði og lærði helling, við fórum yfir gamalt próf og læti. Svo tók ég lokapróf í landafræði og gekk bara skítlega vel, svona miðað við hvað ég lagði í lærdóminn. Eftir það fór ég í eðlisfræði og lærði slatta þar líka. Reyndar ekki neitt sem ég vissi ekki fyrir en þetta var ágætis upprifjun.

Nú ætla ég að ekki að gera skít fyrr en á laugardaginn eða sunnudaginn. Það verður gaman. Ég get horft á

þriðjudagur, apríl 29, 2003

Ég upplifði minn heimskulegasta skóladag to date í dag. Ég mætti í skólann klukkan átta og fór í stærðfræði. Mér fannst frekar fáir vera mættir og fattaði þá að það var frjáls mæting.....FRÁBÆRT! Ég gekk út úr tíma og gerði ekki neitt, einn, í klukkutíma (það er enginn í gati í fyrsta tíma!). Ég var í gati í næsta tíma þannig að ef ég hefði drullast til að hlusta á Legolas í síðasta tíma þá hefði ég getað sofið rúmum tveimur tímum lengur, sem hefði verið ágætt þar sem ég fékk ekki beint mikinn svefn í nótt. Nú í þriðja tíma var komið að surprise surprise tíma Rögnu Briem (hljómar vel....). Ég kláraði þennan stærðfræðiáfanga á síðasta föstudag en hún sagði okkur samt að mæta í dag en vildi ekki segja okkur hvað við áttum að gera. Skiljanlega, því þá hefði líklega enginn mætt. Við horfðum á Donald Duck in mathematics land, á íslensku. Það fannst mér ekki gaman því ég skildi aldrei hvað Andrés sagði þó að það hafi líklega verið mjög fyndið vegna þess að annað fólk virtist skemmta sér konunglega. Svo fór ég aftur í gat. Yay. Síðasti tíminn var landafræði. Hann tók fimm mínútur. Þá fór ég heim. Ef ég tek saman hvað ég lærði gagnlegt í skólanum í dag þá ætti að verða einhvers staðar í kringum ekkert. Það er reyndar ekkert einsdæmi, en aftur á móti er furðulegt að það sem ég átti að læra í dag var líka mjög nálægt ekkert-markinu.
Ég ákvað að verða við beiðni Atla og posta niðustöðunum úr þessu prófi :

Atli
You are...Atli! You'd wish you were in a rock
band, but you just can't play guitar! You hang
around all day and often wish you were
somewhere in the Mediterranean drinking beer.
Music is the love of your life, and you have a
lot of hair on your body! Fantastic!


Til hamingju Atli, ég er þú. Kannski ég linki bara á Atla, hann er góður gaur.
lol haxx! kmr n00b! = Fyndið, hann er að svindla! Gengur betur næst byrjandi!

Ég er að spá í að búa til counter-strike babelfish.
Shiiiiiii......


Þetta er flottasta mynd sem ég hef séð lengi. Ætli hausinn komi út úr skottinu? Nei bara svona pæling hjá mér sko......

mánudagur, apríl 28, 2003

Djöfull langar mig að sjá þessa mynd. Þetta er heimildamynd um það þegar Terry Gilliam (gaurinn sem gerði 12 monkeys, fear and loathing, monty python and the holy grail, brazil og fleira fyrir þá sem eru hálfvitar) ætlaði að gera myndina The man who killed Don Quixote en allt fór úrskeiðis sem gat farið úrskeiðis og það varð að hætta við myndina þó tökur væru hafnar. Mig mundi reyndar meira langa að sjá þá mynd fullkláraða en það mun líklega ekki gerast. Núna er snillingurinn að vinna að The Brothers Grimm sem verður án efa mikið snilldarverk og því næst mun hann líklega gera Good Omens eftir sögu Terry Pratchett og Neil Gaiman. Mééééééééér hlakkar svo til!
YAY! Veskið mitt er komið í leitirnar! Ég týndi því á föstudaginn og var farinn að sjá fram á það að ég mundi aldrei sjá 3000 kallinn sem var í því aftur og að ég þyrfti að borga 3500 kall fyrir nýtt ökuskírteini, svo ég tali nú ekki um vesenið með að redda sér nýju skírteini og debetkorti og það allt. En, það kom í ljós að ég hafði týnt því í bílnum hans Odds og foreldrar hans höfðu fundið það og farið með það inn. Nú er ég glaður.

Ég er búinn að lesa tvo kafla af átta fyrir landafræðiprófið á miðvikudaginn. Shiiiiiiii ég er lélegur.
Af hverju eru borðin í skólanum ennþá eins og þau voru á föstudaginn? Skiptir ekki máli.....ég er farinn að læra....
Á leiðinni í skólann í morgun fann ég Guðna vin minn sofandi í aftursætinu í bílnum sínum á bílastæðinu bakvið Háteigskirkju. Ég þarf kannski að fara að leita mér að minna rónalegum vinum...... Ég ákvað að vera ekkert að vekja hann þar sem ég var eiginlega ekki viss um að ég vildi vita hvað hann væri að gera þarna.

Ég fór heim úr skólanum áðan staðráðinn í því að nú skildi ég sko lesa landafræði. Og viti menn, hér sit ég og skrifa niður tilgangslausar upplýsingar sem ekki nokkur maður les nema kannski hugsanlega ég sjálfur einhvern tíman seinna. Skemmtilegt.
Ok, sko, núna er klukkan um 20 mínútur yfir 3. Ef ég er með tímann á þessu bloggdrasli stilltan á GMT (sem við erum á), þá stendur undir fokking postinum að klukkan sé 4:20 (u.þ.b). Ef ég stilli á GMT-1 þá fer það í 2:20! Hvað í fjandanum???? Það vantar heilan klukkutíma í þetta scheisseapparat.
Ég er pirraður! Ég þurfti að skipta um template af því að flotta eldtemplatið var með attitude. En núna fæ ég ekki fokking teljarann til að virka! Ég hef ekki hugmynd um hvar ég á að troða þessum teljarakóða! Hjálp væri vel þegin. Ég mundi vilja hafa teljarann undir linkunum.

Ég á að mæta í skólann á morgun og ég er ennþá vakandi klukkan 3. Hvað í fjandanum er að mér? það fyndna er að þetta er ekkert seint. ekki svona miðað við amk.
ok, ég bloggaði síðast um jólin. það eru 5 mánuðir síðan.

Þar sem ég er mikill aðdáandi Ástþórs Magnússonar þá fannst mér þetta tómatsósuuppátæki hans um daginn í réttarsalnum sérlega skemmtilegt. Það sannfærir mig ennþá frekar um það að hann eigi skilið langt langt frí einhvers staðar langt langt í burtu frá mér.

Sjáum til, hvað er nýtt að frétta......ég er að fara í próf. Ég er búinn með eitt og gekk vel, annað á miðvikudaginn og svo einhver hellingur í viðbót. Ég ætlaði að vera svakalega duglegur að læra um helgina en er ekki búinn að lesa staf, mér finnst til dæmis að ég ætti annað hvort að vera að læra núna eða þá vera sofandi svo ég geti eitthvað lært á morgun. En svona er maður asnalegur.

Humm, ég er búinn að bæta við svona shoutout möguleika, þar sem ég er mikill bloggamatör þá var það flóknara en það hljómar. Nú þarf ég bara að læra að posta myndum og þá er ég kominn langleiðina með það að sigra heiminn.

Komnir linkar á Krummann og The Agle.