mig langar að óska öllum (nema þessum á listanum mínum fyrir neðan) gleðilegra jóla! nú eru bara 3 tímar þangað til ég fer til ömmu að éta.
þriðjudagur, desember 24, 2002
mánudagur, desember 23, 2002
sunnudagur, desember 22, 2002
Fólk sem mætti hverfa af yfirborði jarðar:
Nelly
Ja Rule
Einar Ágúst
MC Steinbítur
Ástþór Magnússon
Árni Johnsen
Christopher Lambert
Friðrik Weisshappel
Vala Matt
Fólkið sem var með djúpu laugina í fyrra
Michael Jackson
Þetta er nógu stór skammtur af ógeðslegu fólki að hugsa um í bili. Þetta verður pottþétt uppfært innan skamms.

ég vil að einhver útskýri fyrir mér af hverju ástþór magnússon fær að ganga laus. ok, fyrir rúmum sex árum bauð maðurinn sig fram til forseta. það var fyrst þá sem ég gerði ég mér grein fyrir því að hann væri snarklikkaður. hann var varla að gera sér alvöru vonir um að vera kosinn? ég á erfitt með að trúa því. hann vantaði bara athygli. nú, ástþór fékk ekki að forsetastólinn (ótrúlega en satt) svo hvað var betra að gera í stöðunni en að fara að stuðla að heimsfrið? ég veit ekki hvernig hugmyndir manna um heimsfrið eru almennt en ég hef aldrei séð heimsfrið fyrir mér sem mann í jólasveinabúningi sem kallar sig frið 2000 og dreifir jólagjöfum til barna í miðausturlöndum. síðast þegar ég vissi var það kallað geðsýki. skyndilega hætti ástþór jólapakkadreifingaþjónustunni af ástæðum sem ég hef ekki upplýsingar um. honum var líklega neitað um lendingarleyfi allstaðar. en ekki var ástþór á þeim buxunum að hætta eftir þetta, nei aldeilis ekki. fyrst það hlustaði enginn á aumingja ástþór eftir að hann flaug um víða veröld í jólasveinabúningi hvenær mundi þá einhver hlusta á hann? jú, ástþór fékk þá frábæru hugmynd að hringja í flugfélag íslands og tilkynna þeim að það væri að öllum líkindum sprengja um borð í flugvél á þeirra vegum. að sjálfsögðu var engin sprengja í neinni flugvél, og þó að það hefði verið sprengja í einhverri flugvél mundi enginn vera svo tómur að láta ástþór magnússon vita af því, hann kjaftar bara! en neikvæð athygli er betri en engin athygli og það var eitt af því fáu sem ástþór magnússon vissi. þarna fékk hann nú athygli í smá stund. en þegar athyglin fór að hverfa þá datt honum snilldarráð í hug! hann ákvað að klæða sig í gamla jólasveinabúninginn sinn sem hann hafði notað í jerúsalem þegar hann færi fyrir rétt, kærður fyrir morðhótun. og þvílík hugmynd! nú trúi ég ekki öðru en að hann fari inn á klepp. best væri reyndar að senda hann úr landi. ísland er ekki öruggt á meðan ástþór magnússon er þar, sama þó að hann sé lokaður inni á stofnun. það ætti að senda hann og árna johnsen í útlegð saman. þeir hefðu örugglega gaman af því.
jæja. ég ætla að fara aðeins fyrr að sofa en venjulega núna. maður veit að maður þarf að fara að hugsa um svefnvenjur sínar þegar það er snemmt að fara að sofa klukkan 6 um morgunn.
jæja. ég ætla að fara aðeins fyrr að sofa en venjulega núna. maður veit að maður þarf að fara að hugsa um svefnvenjur sínar þegar það er snemmt að fara að sofa klukkan 6 um morgunn.
laugardagur, desember 21, 2002
yay! ég er kominn með teljara. hann er búinn að telja sjö heimsóknir, allar frá mér. það fær mig til að velta fyrir mér af hverju ég er að þessu....
ég keypti mér bumsquad diskinn um daginn. hann er fínn er það eru samt nokkur lög á honum sem eiga ekki heima þar. fyrst má nefna lagið frá þeim félögum í bumsquad. hvernig atvikaðist það að þessir menn fengu að gera lag? "hey! ég veit, látum ÞESSA gaura gera rapplag!". "en þeir hafa aldrei gert það áður. það verður lélegt". "neinei, það verður bara sniðugt". en nei. það varð ekkert sniðugt. það varð bara ógeðslegt. í öðru lagi er hægt að nefna lagið hennar beturokk. eða nei annars. það er ekki hægt að nefna það. maður fær æluna alveg upp í kok og vel það. mc steinbítur heitir maður. reyndar heitir hann hjalti eða eitthvað en hann kallar sig því ótrúlega sniðuga nafni mc steinbít. mc steinbítur geirir leiðinlega tónlist. samt á hann lag á bumsquad disknum. leiðinlegt lag sem heitir vopnaalda. þar reynir hann að halda því fram að hann sé thug. hann er ekki thug. nú síðast en ekki síst má nefna leiðinlega laið frá gelgjunum í uranuz. fattiði? UrAnuz! Ur Anuz! Your Anus! fattiði? já, ég er viss um að þið fattið. ég er viss um að allir hafi fattað þetta nokkrum árum á undan stelpunum í uranuz því að þær hljóta að hafa verið nýbúnar að fatta þetta þegar þær skýrðu hljómsveitina, annars hefðu þær ekki notað þennan ótrúlega útþynnta og ofnotaða brandara sem nafn á hljómsveitinni sinni. annars er lagið alveg skelfilega pirrandi. ég get ekki hlustað á það. ekki einu sinni til að hlæja að því. það er of sárt. annars eru mörg prýðislög á disknum og þar bera af lögin frá o.n.e, bæjarins bestu, skyttunum og tiny. frábær lög.
ég keypti mér líka diskinn frá bæjarins bestu. hann er frábær! þetta er með bestu íslensku diskum sem ég hef keypt. ég og katrín.is erum sammála um það að þessi diskur sé snilld. dóri, kjarri og danni fá feitt biggöpp frá mér fyrir þennan disk.

klukkan er rúmlega fimm á þessum dimma laugardegi og ég er nývaknaður. það er ekkert smá óþolandi að vakna svona seint. ég meina, ÞARF ég að fara að sofa klukkan átta á morgnana? gæti ég ekki alveg eins farið að sofa klukkan tvö og vaknað á hádegi eða jafnvel fyrr? þá mundi ég amk sjá dagsbirtu. mér er farið að líða eins og vampíru. frí fer ekkert smá illa með mann. en samt sækist maður eftir því. mannfólkið er skrýtið.
Mig langar að sjá þessar myndir:
LOTR: TTT
25th Hour
Daredevil
The Hulk
Terminator 3
Punch Drunk Love
The Matrix Reloaded
Gangs Of New York
The Ring
Kill Bill
The Transporter
LOTR: ROTK
Adaptation
Good Omens
Þetta eru allt myndir sem ég mun fyrr drepast en komast ekki á í bíó. Ef ég gæti keypt miða á frumsýninguna á þeim öllum núna þá mundi ég no doubt gera það.

mig langar aðeins að tala um stærðfræðibækur. ég er í menntaskóla (mh nánar tiltekið) á náttúrufræðibraut. það að vera á náttúrufræðibraut þýðir það að maður þarf að læra mikla stærðfræði. í mh eru notaðar stærðfræðibækur eftir þrjá gaura sem ég nenni ekki að finna út hvað heita og eru gefnar út af tölvunot ehf. ég ætla að rekja aðeins söguna af mér og stærðfræðibókunum. þannig er mál með vexti að á annarri önninni minni í mh tók ég stærðfræðiáfangann stæ 203 og þurfti að kaupa bókina stæ 203 eftir þessa gaura (ég hafði fengið að nota aðra bók í 103). þetta var í fyrsta skipti sem þessi bók var kennd (og í fyrsta skipti sem þær voru gefnar út!!!! yay!). strax á fyrstu dögunum tók ég eftir að þessi bók var alveg einstaklega ruglingsleg og illa skrifuð og strax á fyrstu dögunum tók ég eftir að bókin var farin að detta í sundur!! þetta fannst mér slæmt þar sem ég hafði borgað tæpan 5000 kell fyrir bókina. þegar ég minntist á þetta við samnemendur mína í áfanganum þá kom í ljós að ég var ekki sá eini sem átti við þetta vandamál að stríða. reyndar áttu nánast allir við þetta vandamál að stríða. þetta gerði bókina óhæfa í endursölu og þýddi töluvert tap á fjármunum nemenda í stæ 203. jæja, ég seldi reyndar ekki bókina eftir önnina heldur lánaði hana en fór hins vegar í áfangann stæ 303. viti menn, aftur var notuð bók frá tölvunot sem í þetta skiptið hét því frumlega nafni stæ 303. aftur var bókin kennd í fyrsta skipti enda að koma út í fyrsta skipti fyrir þessa önn! þetta þýddi það að það var engin leið að kaupa hana notaða og aftur kostaði hún tæpan 5000 kell. aftur var hún ruglingsleg og illa skrifuð og aftur datt hún í sundur! hún datt ekki bara aftur í sundur hjá mér heldur datt hún aftur í sundur hjá 90% nemenda í stæ 303! aftur þýddi þetta að bókin var óhæf í endursölu og aftur þýddi það tap á fjármunum, í flestum tilvikum hjá sömu nemendum. þennan áfanga stóðst ég með einkunnina 7 (sömu einkunn og í 203) og lánaði bókina að honum loknum. þá var komið að næsta áfanga, stæ 403! og enn aftur var notuð bók frá þessum miklu snillingum í tölvunot. sú bók kom öllum á óvart og hét í þetta skiptið stæ 403!!! enn og aftur var þetta fyrsta skiptið sem bókin var kennd og enn og aftur var þetta fyrsta skiptið sem bókin kom út! þetta þýddi enn og aftur að bókin var ófáanleg á skiptibókamarkaði og maður neyddist til að borga tæpan 5000 kell fyrir hana. enn og aftur var bókin illa skrifuð og ruglingsleg og enn og aftur datt bókin í sundur á fyrstu dögunum! hjá nánast öllum! enn og aftur þýddi þetta að ekki var hægt að selja bókina á skiptibókamarkað og nemendur töpuðu umtalsverðum fjármunum! þennan áfanga tókst mér að standast með einkunnina 5. þegar leið á þessa fjórðu önn varð mér loksins nóg boðið. ég settist niður við tölvuna og skrifaði harðort og gagnrýnið bréf til félaganna í tölvunot. þarna kom fram allt sem mér fannst vera að hjá þeim og þetta endaði sem rétt tæp blaðsíða af röfli. ég hef ekki enn fengið svar frá þeim félögum. svo hófst fimmta önnin sem nú er nýlokið. ég hélt áfram endalausri baráttu minni við stærðfræðina og tók áfangann stæ 503. í þeim áfanga þurfti maður næstu bók frá tölvunot. ekki gátu þeir farið að bregða út af vananum þegar þeir voru komnir svona langt þannig að bókin hét því skemmtilega nafni stæ 503. nú, bókin var að sjálfsögðu kennd í fyrsta skiptið og var að sjálfsögðu líka gefin út í fyrsta skiptið fyrir þessa önn. að sjálfsögðu var hún illa skrifuð og ruglingsleg og full af tilvitnunum í fyrri bækur tölvunota enda ekki við öðru að búast frá þessum miklu snillingum. og að sjálfsögðu datt hún líka í sundur eftir örfáa daga af notkun......eða hvað? alla önnina sátu nemendur og störðu á bækurnar sínar í forundran. "ætlar hún ekki að detta í sundur?", "þetta hlýtur að fara að koma", "þessi er að slá met!". nemendurnir voru svo uppteknir af því að bíða eftir því að stærðfræðibókin þeirra dytti í sundur að þeim gafst enginn tími til að sinna náminu. en það gerðist aldrei. ég hafði fyrir því að skrifa næstum því heila blaðsíðu af kvarti en það var þegar búið að laga það! ég eyddi dýrmætum tíma og heilakrafti í að skrifa lengsta kvörtunarbréf sem ég hef nokkurn tíman skrifað! og til hvers?! til að kvarta yfir einhverju sem var þegar búið að laga?! þeir höfðu ekki einu sinni tíma til að skrifa mér til baka! það er skemmst frá því að segja að vegna áfallsins féll ég í áfanganum og það má kenna bókunum frá tölvunot alfarið um það. í fyrsta lagi: bækurnar eru illa skrifaðar og ruglingslegar. í öðru lagi: bækurnar eru óhóflega ljótar og leiðinlegar og gera það að verkum að stærðfræðin verður enn meira fráhrindandi en hún gæti verið. í þriðja lagi: síðasta bókin datt ekki í sundur og það setti mig alveg út af laginu. ég hvet alla til að sniðganga bækurnar frá tölvunotum og ráða sér einfaldlega einkastærðfræðikennara í staðinn. það er örugglega hagstæðara.
ég sá að siggi minntist á það þegar eyjó var hakkaður af fullorðna gaurnum í 8 (eða 9, man það ekki) ára afmælinu mínu. ég sver að það var ekki mér að kenna. ég meina, það hlupu allir! bara koma því á hreint... (og siggi, þetta var egill tiny sem kastaði snjóboltanum ekki egill stykki. ég hafði aldrei hitt egil stykki þegar ég var á þessum aldri og þess vegna er hæpið að hann hafi verið í afmælinu mínu).

mér sýnist ég bara vera búinn að ná nokkuð góðum tökum á þessu. ég er búinn að færa fullt af texta til og frá og meira að segja bæta við tengli á hann sigurð arent. það sem tölvutæknin býður uppá! þetta er magnað.
jæja, nú er ég búinn að losa mig við þetta...tja.....ljóta template sem ég var með
og er kominn með template með eldi í staðinn! eins og allir (flestir amk) vita þá er eldur svalur.
þegar maður var lítill þá var maður svalur ef maður lék sér með eld og allt sem kom eld við var spennandi.
samkvæmt þessu er ég ennþá lítill.

jæja. það hlaut svosem að koma að því. ég er búinn að búa til mitt eigið blogg.
fyrst þegar allir byrjuðu að blogga þá var ég mjög skeptískur.
"mellur!" hugsaði ég. en ég varð að vera partur af hópnum.
það var reyndar allt í lagi að búa til blogg. það gekk allt áfallalaust fyrir sig alveg þangað til að ég kom að því að velja bakgrunn fyrir bloggið mitt.
"oj!" hugsaði ég, þetta er allt ljótt! og þar sem ég er ekkert alltof flinkur í svona html dóti þá kann ég ekkert að setja mína eigin template og rugl inn.
en ég er svona outgoing gaur þannig að ég ákvað að velja bara þetta hræðilega ljóta, ógeðslega
litríka template sem lítur út eins og þriggja ára þroskaheftur api hafi búið það til á svarthvítu macintosh plus tölvunni sinni.
ég vona að ég fái tækifæri til að laga þetta einhvern tíman.